Þriðjudagur, 10. ágúst 2010
Ó neiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii! BBC þurfti endilega að taka tvo Íslendinga tali í dag vegna Íslands, ESB og þá helst hvalveiða og hvort þær yrðu til trafala á leið okkar inn í þetta ægilega fína samband dannaðari Evrópuþjóða. Allt í fína með það. Eða ekki, vegna þess að BBC kaus að tala við Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra og bullukoll, og Kristján Loftsson, hvalútgerðarmann og bullukoll.
Þetta hlýtur að hafa verið með illum vilja gert hjá fréttamönnum þessa annars ágæta miðils sem BBC er vegna þess að þessir tveir bullustrumpar eru verri landkynning en öskufallið og geta á þremur mínútum núllað út allt það sem Jón Páll, Hófí, Linda P og Björk hafa gert fyrir ásjónu Íslands útávið.
Fólk í útlöndum sem hefur hlýtt á karlagrobb og belging hinna urluðu afdalakalla Jóns og Kristjáns hefur sjálfsagt misst andlitið enda væntanlega talið víst að þarna væru á ferð helstu áhrifamenn á Íslandi og landsins bestu synir. Ég meina annars væri BBC ekkert að tala við þá.
Ef maður sjálfur, hér á Íslandi, myndi heyra framámenn frá Moldóvu, Kína eða Afgansitan tala svona myndi maður hugsa með sjálfum sér: AUMINGJA FÓLKIÐ!
En já. Þetta aumingja fólk er semsagt við.
| 23:30 |