»  off record  »  Dómsdagur Nú! (á morgun)
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Dómsdagur Nú! (á morgun)
Þriðjudagur, 03. ágúst 2010

(eða Ljóðahornið endurvakið)

Lára vinkona mín lofar mér heimsendi á morgun og ég er frekar spenntur enda hefur mig lengi langað að upplifa útdauða tegundar minnar. Eðlisfræðingurinn vinur minn, sem hefur unnið fyrir NASA, segir samt að sólgosið muni í mesta lagi auka líkurnar á norðurljósum ef það verði ekki skýjað.

Þegar við eðlisfræðingurinn vorum yngri, og reiðari geri ég ráð fyrir, lágum við í ljóðum Ísaks Harðarsonar sem er enn uppáhaldsskáldið okkar. Í Ræflatestamenti Ísaks eru nokkur góð dómsdagsviðbrögð sem mér finnst vel við hæfi að dusta rykið af á meðan við bíðum eftir norðurljósunum (eða heimsendi allt eftir því hvernig á það er litið).

Þessi viðbrögð eru eiga sjálfsagt misvel við fólk en flestir ættu að geta fundið í það minnst eitt til þess að hugga sig við þegar blessuð sólin sem hatar allt byrjar að gjósa.

Þetta var kannski meira svona fyrir Jón Ásgeir og þá alla fyrir hrun. Þeir sem lesa og skilja ljóð tapa yfirleitt ekki miku í bankakrísum:

Dómsdagsviðbragð (I)

Þeir segja atómstríð í vændum.
Væri ekki ráð að selja hlutabréfin?


Þar sem ég hef verið án atvinnu í rúmt hálft ár gerir þetta ekki mikið fyrir mig en Halldór vinur minn Högurður gæti haft gagn af þessu:

Dómsdagsviðbragð (3)

Þeir segja atómstríð í vændum.
Væri ekki ráð að fara í fríið?


Þetta finnst mér þjóðráð þótt ég væri meira til í tvöfaldan romm í kók:

Dómsdagsviðbragð (4)

Þeir segja atómstríð í vændum.
Væri ekki ráð að fá sér í feita pípu?

Ha, Lára mín?:

Dómsdagsviðbragð (5)

Þeir segja atómstríð í vændum.
Væri ekki ráð að slökkva á fréttunum?

Þetta er að sjálfsögðu stílað beint á sjálfan mig:

Dómsdagsviðbragð (6)

Þeir segja atómstríð í vændum.
Væri ekki ráð að byrja að lifa
svo þeir hafi eitthvað til að drepa?

Og þetta á Heiða B. Heiðars skuldlaust:

Dómsdagsviðbragð (7)

Þeir segja atómstríð í vændum.
Væri ekki ráð að ráðast á ráðamenn?

Góðar stundir!

p.s. við þetta má bæta að Ræflatestamenti Ísaks er ásamt The Big Sleep eftir Chandler, Sléttuúlfi Hesse og Zaraþústru Friedrichs á meðal þeirra bóka sem ég skil aldrei við mig. Alveg sama hvort ég bý í kjallara, kössum eða Geymslum.is.


| 21:07 |
komment

En hvað með í neðanjarðarbyrgi með sólgleraugu til æviloka? Þetta árans gos kemur í nótt Tóti. Það veit guð og sólvörnin nr. 50.

Nr. 1 | Lára | 3.08.2010 | 21:38:55 | [+] |

Haha... mitt er klárlega best :)

Nr. 2 | Heiða B Heiðars | 3.08.2010 | 21:56:15 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff