»  off record  »  Furðuleg leið mömmu til að koma í veg fyrir sjálfsmorð mitt
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Furðuleg leið mömmu til að koma í veg fyrir sjálfsmorð mitt
Sunnudagur, 08. ágúst 2010

Ég er og hef alltaf verið mömmustrákur þannig að ég fór auðvitað til mömmu að grenja um daginn þegar blankheit og hungur voru að sliga atvinnuleysingjann andlega. Mamma er búinn að vera hjúkka í rúma þrjá áratugi og hlustar ekki á neinn barlóm þannig að hún steikti handa mér þorsk og keypti svo íþróttaskó handa mér daginn eftir.

Eins og alþjóð veit er ég með bölsýnni og þunglyndari mönnum og lítið má út af bera til þess að ég leggist undir dúnfeld eða helli mig fullan og reyni að koma af stað fjórðu heimsstyrjöldinni í lífi mínu. Ég var því eðlilega ferlega tæpur í júlí þegar ég gat ekki borgað allar mínar skuldir á gjalddaga í fyrsta skipti í fimm ár.

Lagðist því í rúmið og velti fyrir mér hvort það væri nokkuð svo óþægilegt að ganga í sjóinn frá Ægisíðu og stinga þannig af frá öllu bögginu. Mamma fann auðvitað á sér alla leið upp í Mosó að eitthvað væri að hjá litla stráknun sínum, hringdi í mig og skipaði mér að koma í kvöldmat.

Yfir þorskinum ákvað mamma að ég þyrfti að hreyfa mig meira. Þetta sundbusl mitt væri ekki nóg og ég yrði að fara að hlaupa og svo rifjuðum við upp hvað ég var brjálæðislega góður langhlaupari í gamla daga áður en ég fattaði að líf letingjans var málið.

Ég viðurkenndi alveg að kannski gæti það gert mér gott að hlaupa en bar mig illa og sagðist halda að það færi illa með lappirnar á mér að hlaupa langar vegalengdir í kúrekastígvélum og ég væri nú síst af öllu borgunarmaður fyrir hlaupaskóm eftir að ég varð bara fyrrverandi ritstjóri Mannlífs.

Mamma leysti það með því að kaupa á mig skó gegn því að ég færi að hlaupa meðfram Ægisíðu en léti það eiga sig að ana út í sjó, aðra leiðina. Og, jújú. Ég hef ekki pælt í því í neinni alvöru að kála mér síðan en hleyp samt eins og andskotinn sé á hælum mínum. Eðlilega þar sem hann er alltaf alveg við það að ná í skottið á mér.


| 14:08 |
komment

Hlauptu berfættur á grasi. Hlaupaskór eru vitleysa fundin upp af Nike á 8. áratugnum til að græða.

Nr. 1 | Steinn | 12.08.2010 | 10:40:18 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff