Laugardagur, 07. ágúst 2010
Bloggið sem segir sex: X
Ég hef ekki hætt mér út úr bönkernum í dag fyrir utan jú að ég skaust út í Bónus og bakarí og beint aftur heim. Það er samt ekki beinlínis hómófóbía sem veldur því að ég held mig fjarri gleði og gaum þegar Gay Pride-gönguflokkurinn gengur laus. Síður en svo enda er ég svo öruggur í mínu kynlutverki að ég get meira að segja fúslega gengist við því að mér finnst sumir karlmenn beinlínis sexí vegna þess hversu fallegir og karlmannlegir þeir eru.
Ekkert nema gott um það að segja en á það líka til að heillast af karlmönnum í draggi en þá án þess að gera mér grein fyrir því að þeir eru karlar og þá get ég átt á hættu að lenda í svipuðum hremmingum og hann Fergus í Crying Game. Semsagt langað til þess að stökkva á karlmann og fara höndum um hann sem konu þótt hann sé karl. Þið fattið dillemunna?
Þetta skrifaði ég í dagbók farandfyllibyttunnar eftir víraða nótt í Carmen-hverfinu í Valencia sumarið 2006:
"Það sem gerir djammið hér í Valencia þó ögn frábrugðið því sem maður hefur vanist er að þetta er svolítið eins og að fara yfir jarðsprengjusvæði vegna þess að flottustu gellurnar eru ekki stelpur heldur magnaðar trönsur. Margur hefur víst farið flatt á þessu. Mér skilst samt að menn geri samt oft ekkert veður út af ruglinu þar sem trönsurnar eru öðrum fremri í totti."
Allar flottustu gellurnar á staðnum og þær sem ég hafði einhvern áhuga á að kynnast betur reyndust vera strákar þegar aðeins betur var að gáð. En sætir voru þeir. Ó boj, ó boj. Við erum alveg að tala um gyðjur í Angelinu klassa.
Þetta með tottið sagði mér hann Alberto sem fór einu sinni heim með trönsu sem hann hélt að væri kona en sá ekki ástæðu til þess að vera með vesen og leiðindi og hopa þegar á hólminn var komið og tvö sverð voru skyndilega á lofti.
Aðalástæðan fyrir því að ég hef haldið mig fjarri miðbænum í dag er einfaldlega sú að ég vil ekki taka sjénsinn á því að Jón Gnarr höfði til mín sem sexúal-viðfang. Og það gefur augaleið að það hefur sko ekkert með hómófóbíu að gera. Frekar lágvaxinna grínarafóbíu eða eitthvað.
Óska samt hommum og lessum og öllum hinum til hamingju með daginn og hugsa fallega til ykkar úr kjallaranum þar sem ég á enga hættu á að renna óvart girndaraugum að borgarstjóra Reykjavíkur.
| 19:27 |