»  off record  »  Handónýt helgi
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Handónýt helgi
Mánudagur, 02. ágúst 2010

Verslunnarmannahelgin er í grunninn óendalega hallærisleg, tjah kannski ekki helgin sjálf sem slík en hún afhjúpar þó vissulega hjarðeðli og plebbaskap þjóðarinnar. Þrátt fyrir þetta hafa þessir fjórir dagar í ágústbyrjun alltaf verið mér sérlega kærir vegna þess að ég hef lengi vitað að besta leiðin til þess að lifa af í samfélagi fábjána er að kortleggja hjörðina og gera svo alltaf þveröfugt á við hana.

Ég hef því notið þess að vera í Reykjavík yfir þessa helgi og þótt ákaflega vænt um að fá að hafa borgina mína í friði á meðan botfall samfélagsins ryðst út úr bænum. Það segir sig sjálft að Reykjavík er einstaklega notaleg rétt á meðan skríllinn bregður sér frá og lætur berja sig og nauðga úti í guðsgrænni náttúrunni frekar en Bankastrætinu og skúmaskotum við Laugaveginn.

Hingað til hef ég notað þessa helgi til þess að teygja úr mér í friði í heita pottinum í sundi, hanga á kaffihúsum og fílósófera með fólki sem deilir þessu lífsviðhorfi mínu, drekka með úrvals utangarðsfólki á fámennum börum og keyra hratt um auðar og löggulausar götur borgarinnar.

Bensínstöðvarárin voru auðvitað aðeins öðruvísi en þá byrjaði helgin ekki fyrr en síðdegis á laugardegi þegar síðustu fíflin komu sér upp Ártúnsbrekkuna og maður gat farið að slappa af í vinnunni. Jafnvel fá sér í staupinu án þess að nokkur gerði við það athugasemdir!

Sé eitthvað að marka Verslunnarmannahelgina sem nú er að renna sitt skeið er þessum sæludögum í borginni lokið. Það er búið að eyðileggja þetta fyrir manni eins og allt annað. Ég var rúman hálftíma að finna mér bílastæði í miðborg Reykjavíkur á laugardaginn og bærinn var bókstaflega fullur af fólki. Auðvitað var mikið um útlendinga sem eðlilega eru ekki alveg meðvitaðir um að þessa daga eiga engir nema andsósíal sjúklingar að vera á ferðinni í bænum.

En allir þessir bílar voru ekki á vegum erlendra ferðamanna þannig að ég skil ekki hvað er að gerast. Metfjöldi í Eyjum og samt metfjöldi í bænum! Erum við orðin svona svakalega mörg eða getur verið að allir þeir sem heima sitji séu búnir að fatta plottið og rjúki nú af stað til þess að njóta lífsins í sódómu á meðan rumpulýðurinn er í sumarfríi úti í náttúrunni?

Skiptir ekki máli svosem og hvað sem veldur þá er helgin handónýt.


| 12:57 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff