Þriðjudagur, 03. ágúst 2010
Eftir að Facebook yfirtók mannleg samskipti er maður farinn að stjórnast alveg af þessu ógeðslega fyrirbæri. Ef maður fær ekki umsvifalaust allt sem maður segir og gerir á vegg sínum uppþumlað (lækað) af rúmlega 40 manns verður maður ýmist sár, reiður, móðgaður eða lítill í sér og kiknar undan höfnunartilfinningu sem getur lagt mann í rúmið.
Nema auðvitað að það legst enginn í kör lengur þar sem depurðin er stafræn rétt eins og tilveran þannig að maður hverfur inn í sig og ræktar garðinn sinn í FarmTown eða kaupir sér gæs í Farmville, leggur aldraða frænku sína að velli í Beejeweled eða persónuleikagreinir sig með hliðsjón af persónum í sjónvarpsþáttum og bíómyndum. Síðan mætir maður aftur til leiks og reynir að vera enn skemmtilegri en síðast og bíður eftir að "lækin" hrúgist inn.
Eltingarleikurinn við þumalputtana getur hins vegar orðið að barnaleik og bliknað í samanburði við áfallið sem maður verður fyrir þegar maður tekur eftir því að talan yfir fjölda Facebook-vina manns tekur að lækka. Hvað er í gangi? Hvað gerði ég rangt? Hverjir eru að snúa við mér baki? Er eitthvað að hárinu á mér? Er ég ekki nógu sexí á prófílmyndinni? Sagði ég eitthvað? Skrifaði ég eitthvað?
Þegar vinafjöldinn er kominn yfir einhver hundruð er auðvitað erfitt að hafa yfirsýn yfir það hverjir laumast til að hverfa úr söfnuðinum sem við viljum bara að sé með þumalputtana á lofti og réttlæti þannig tilveru okkar.
Ég hef því ákveðið að taka afrit af Facebook-vinalista mínum vikulega og vista í Excel-skjali. Ég mun síðan bera listana saman á milli vikna og skrá vandlega niður þá sem hafa svikið mig. Þeir sem vilja ekki vera vinir mínir, eru óvinir mínir. Og þar sem ég sendi ekki jólakort get ég ekki náð mér niður á svikurunum með því að strika þá út af jólakortalistanum. Ég ætla því að fara heim til fólks, klippa á bremsubarkana á bílum þess, setja sykur í bensínið, bera bremsuvökva á lakkið á nýlegum bílum. Þið vitið hvað gerist þá? Nú ok. Drífiði ykkur þá að spyrja Nicolai.
Og hugsið ykkur tvisvar um áður en þið komist að þeirri niðurstöðu að þið séuð nógu góð til þess að hafna mér á Facebook.
| 10:14 |