Miðvikudagur, 04. ágúst 2010
Baneitruð slúðurpressan ytra virðist eitthvað aðeins vera að slaka á gagnvart Mad Mel Gibson. Lítið hefur borið á nýjum símaupptökum af leikaranum froðufellandi einhverja svívirðu þannig að einna helst mætti ætla að hann hefði brugðið sér í hlutverk Djöfulsins sjálfs sem baular í neðra.
Ég vona auðvitað að Gibson sé að nota þetta tilfinningalega svigrúm til þess að taka til í sínum málum, pakka saman búslóðinni og undirbúa flutning til Ástralíu. Held að álfan sú sé öruggasti staðurinn fyrir hann að vera á svona rétt á meðan umheimurinn gerir upp við sig hvort kempan sé endanlega búin að vera eður ei.
Sem dyggur aðdáandi Gibsons í gegnum áratugina hefur þetta tröllvaxna fíaskó lagst þungt á mig. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé með nokkru móti hægt að verja kallinn en hins vegar má reyna að leita skýringa á því hvað olli sturlun hans. Ég held ég hafi fundið svarið í tæplega fjögurra ára gamalli bloggfærslu minni þar sem ég undraðist grimmilega refsingu sem Gibson fékk fyrir að kalla löggumann í Ameríku öllum illum nöfnum.
Your honor, is this justice?
Föstudagur, 18. ágúst 2006
Ekki veit ég hvers aumingja Mel Gibson á að gjalda. Fyrir það eitt að keyra pínu fullur og drulla yfir gyðinga er hann dæmdur til þess að sækja fimm AA fundi á viku í fjóran og hálfan mánuð!
Ef þetta "fellir" (óendanlega hallærislegt hugtak í þessu samhengi) menn ekki þá veit ég ekki hvað gerir það. Þetta hlýtur að reka hvern mann út í massa drykkju sem endar með að hann goes postal með haglabyssu á fundi. Þetta er ljótur, ósanngjarn og harður dómur. O.J. komst upp með tvöfalt morð og Gibson er miklu betri og merkilegri leikari en sá skrattakollur.
En þetta eru semsagt þakkirnar sem hann fær fyrir Mad Max og Leathal Weapon. Dómskerfið þarna úti er greinilega rotnara en hér heima en þar fyrir utan er ekki mikill munur á AA samtökunum og fjölþjóðlegu gyðingamafíunni sem hefur komið heimsbyggðinni á heljarþröm. Snæduvitlaust ofsatrúarlið með breiðbandstengingu við æðri máttavöld.
Æ, stundum er svo auðvelt að skilja terrorista.
Miðað við tóninn þarna í garð alkapata má gera ráð fyrir að ég hafi sjálfur verið á löngum drykkjutúr vegna þess að þarna er nú ýmislegt ljótt og ómaklegt sagt.
Þetta gyðingaupphlaup Gibsons er gömul lumma en við verðum að hafa hugfast að tveimur árum áður gerði hann kvikmynd um pínu Krists og hefur sennilega jesúsað yfir sig þá og fengið á heilann að gyðingar hafi drepið Jesús. Þá hefur hann líklega í kjölfarið byrjað að leita heilags anda í flösku sem endaði með fyrrgreindum ósköpum.
Að vera svo í framhaldinu dæmdur til að stunda fimm AA-fundi á viku hefur varla bætt ástandið til langframa. Töffarar sem lifa og hrærast í gerviheimi geta varla endalaust hlustað á játningavæl samborgara sinna og tekið undir jafnóðum. Gremjan og firringin, sem svona fundir eiga að sópa út, hefur því þvert á móti hlaðist upp og brotist síðan út í þeirri sprengingu sem Oksana varð fyrir.
Hvað sem dómstólar í Bandaríkjunum taka upp á að gera í málum Gibsons nú vona ég heitt og innilega að þeir dæmi hann ekki til AA-funda. Að vísu er líklegra að honum verði gert að gegna þegnskylduvinnu og verði gerður út af örkinni til þess að drepa aðstandendur Wikileaks að hætti Martin Riggs. Hann fer létt með það.
| 20:11 |