»  off record  »  Tígulgosinn – Stranglega bannað börnum!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Tígulgosinn – Stranglega bannað börnum!
Miðvikudagur, 04. ágúst 2010

Bloggið sem segir sex: IX

Færslan um klám og klám hefur eins og við mátti búast vakið bæði kátínu og gremju en ég tel mig geta greint að allir viti ekki alveg hvað Tígulgosinn var. Til þess að við getum glöggvað okkur aðeins á því gróf ég upp úr kössum eintak sem ég keypti af sagnfræðilegum áhuga á Stóra bókamarkaðnum í Perlunni fyrir nokkrum árum.

Mér finnst eðlilegast að tilfæra einfaldlega stuttan kafla úr einni sögunni í blaðinu til þess að fólk geti áttað sig á því hvernig klámið var á áttunda áratug síðustu aldar. Áður en ég byrjaði að pikka þessi ósköp inn hafði ég hugsað mér að strika yfir vafasöm orð til þess að eiga ekki á hættu að verða ákærður fyrir dreifingu á klámi. Sá samt strax að slíkt væri til einskis. Þetta er bara of fyndið og hallærislegt til þess að maður geti fengið sig til þess að hrófla við þessu.

Þar fyrir utan er ég með alveg haug af háskólaeiningum í bókmenntafræðum og þar sem ég er ekki að "hannesa" þessum texta og gera að mínum eigin lít ég á þetta sem fræðilega færslu og framlag mitt til ógerðra textafræðilegra rannsókna á íslensku klámi. Þurfti líka að beita mig hörðu að lagfæra ekki textann og þori að fullyrða að engar villur hér skrifast á innsláttinn. Þetta var svona!

Ég stillti mig líka um að henda inn upphrópunarmerkjum og athugasemdum innan honrklofa þegar textinn fer alveg út í móa í vitleysunni. En þetta er auðvitað svo galið að þetta getur varla stuðað nokkurn í dag og eiginlega er það kraftaverk að þetta hafi getað espað einhvern í gamla daga. Við grípum hér niður í sögunni Ég lá marflöt fyrir honum svona um það bil sem leikar eru að æsast. Njótið:

"Nú var ég alveg berskjölduð gagnvart honum, enda komin úr hverri spjör. Munnur hans fór hamförum um líkama minn, en því verður ekki lýst með nokkru öðru móti, hvernig hann fór að þessu, en ofsalega var tunga hans áköf og heit, þegar hún straukst um mig alla og leita uppi hvern krók og kima. Hann lyfti fótum mínum og setti hvorn á sína öxl sér, glennti svo lærin í sundur til þess að geta stungið tungunni beint á bólakaf inn unaðsreitinn. Báðum höndum greip hann síðan um þjóhnappana til þess að geta fært mig fram og aftur á meðan tungan rakst æ lengra inn og leitaði fyrir sér um allt.

Þessari kennd verður naumast með orðum lýst, en ég var líka að öðlast minn fyrri þrótt svo að ég spennti fæturna aftur fyrir hnakkann á honum og þrýsti honum enn lengra inn í mig, enda hlýtur hann að hafa verið kominn langleiðina upp að maga í þessum ósköpum. [! Jú Ok. Hér get ég ekki stillt mig. Hvað er að?]

Ég stóðst ekki mátið lengur. Ég varð að ýta honum frá mér, ég var búin að fá það alltof oft og alltof hratt. En hann vísaði öllum tilraunum mínum á bug og þrýsti mér bara enn fastar að andliti sínu.

Ég veinaði, ég gat ekki að því gert. Hann var svo miskunnarlaus. Það var engu líkara en hann væri að reyna að umbreyta mér í einhverja kynmaskínu. Mjaðmirnar á mér skókust í ofsa við atlot hans, uns ég afbar ekki meir og lyppaðist aftur á bak niður á rúmið, böðuð svita og ástarvökvum.

Nú tók grjótharður limur hans við þar sem tungan hafði áður farið hamförum, og ruddist galvaskur inn í rennvota físuna eins og hann væri genginn af göflunum.

Hann var móður og másandi og lærin slettust með smellum við lærin á mér meðan hann jók hraðann. Já, það má segja að hann gat aldeilis pumpað þangað til ég fann heitt sæðið gusast inn í mig miklu ofsalegar en vínið hafði gluggað í glösunum áður."

Legg ekki meira á ykkur. En eftir smá hvíld voru þau bæði til í tuskið aftur.

Tekið úr Tígulgosanum Nr. 19 sem kostaði 125 krónur.
Aðrar sögur í blaðinu heita: Nektarmynd handa kærastanum, Íslensk frásögn og Makaskipti. Þarna eru líka nokkrir klúrir brandarar og á baksíðu segir: “Sala óheimil yngri en 18 ára.”


| 14:12 |
komment

Sagnfræðilegur áhugi. Það var þó. Hvar fékkstu þessi éntök af Tígulgosanum annars.

Nr. 1 | Villi Gunnarsson | 4.08.2010 | 19:05:04 | [+] |

Stóra bókamarkaðnum í Perlunni árið 2004. Alveg satt!

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 4.08.2010 | 19:52:28 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff