»  off record  »  september 2010
off record
september 2010

a long time ago...
Stöngulsjúkur Framsóknarflokkur
Mánudagur, 06. september 2010

Ógæfu Framsóknarflokksins og þess fólks sem hann fyllir verður allt að ógæfu. Alltaf! Hörmungarsaga Framsóknarflokksins síðasta einn og hálfa áratuginn getur engan veginn hafa rúllað áfram á tilviljunum einum saman. Slíkt væri bara þvert á öll lögmál. Flokkurinn hlýtur því að vera bölvaður fyrst og fremst vegna þess að þeir sem hafa stjórnað honum frá því Steingrímur Hermannsson gekk af velli eru krónískir fábjánar.

Ef ég man rétt þá veldur stöngulsýki í kartöflum því að stöngullinn drepst og að lokum dettur rotinn hausinn af. Þessi veiki hefur því einkennt flokkinn alveg frá því að Halldór Ásgrímsson spratt upp og datt svo af og rúllaði burt. Síðan þá, á örskömmum tíma í pólitík, hafa hausar Jóns Sigurðssonar, Guðna Ágústssonar og Valgerðar Sverrisdóttur (ég gæti verið að gleyma einhverju nóboddíi, enda vonlaust að hafa tölu á öllum þeim tómu hausum sem hafa skoppað úr þessum úldna kartöflugarði) rúllað sína leið, ýmist á Klöru-bar á Kanarí eða eitthvert allt annað. Verst bara að höfuðlausnir framsóknarfólks eru allar jafn illa kveðnar og á eftir hverjum tómhausnum stingur sér upp annar hálfu verri.

Ég las það út úr frétt DV í dag að flokksforystan er staðráðin í að halda helför flokksins áfram með því að gefa út veiðileyfi á Guðmund Steingrímsson sem hefur sér það eitt til saka unnið að tala af meiri yfirvegun og skynsemi en restin af rumpulýðnum sem fyllir þingflokk Framsóknarflokksins (sorrí Siv, þú hefur alveg tekið góða spretti líka en þetta snýst um framtíð flokksins en ekki gallsúra fortíð).

Þessi aðför að skilgetnasta syni Framsóknarflokksins hófst strax eftir kosningar þegar einhverjum fyrirbærum sem kallast ungir framsóknarmenn í Skagafirði eða eitthvað álíka gáfulegt (eru ekki til stofnanir sem taka svona fólk að sér?) kröfðust þess beinlínis að Guðmundur hyrfi tafarlaust úr flokknum fyrir það að draga opinberlega í efa að það hefði verið flokknum til framdráttar að þingmenn hans og formaður hafi staðið froðufellandi í ræðustóli á Alþingi, gapandi einhverja steypu sem beinlínis skaut skelk í bringu fólks með heilbrigða skynsemi. Þar sem ungt framsóknarfólk getur ekki hugsað sjálfstætt má ganga að því gefnu að þessum unglingum var sigað á Gumma að ofan. Og nú hafa tveir gamlir sómabændur verið dregnir fram og látnir skrifa eitthvert fádæma bréf til Gumma um að hann sé vonlaus. Hvaða vitleysa er þetta?

Þessir blessaðir bændur eru samkvæmt DV-frétt Jóa Hauks 76 og 72 ára gamlir þannig að ég tel víst að þeir hafi lesið Tímann, sem afi minn ritstýrði í rúma hálfa öld eða lengur, eins og Biflíuna þannig að ég átta mig ekki alveg á því úr hvaða átt þeir eru að koma.

Hér er kannski rétt að staldra aðeins við og láta þess getið að afi vann náið með Hriflu-Jónasi, Hermanni, Eysteini, Óla Jó og Steingrími og var innsti koppur í framsóknarbúrinu (no pun intended) í áratugi. Og það sem ég lærði af honum er að allt er betra en íhaldið (jú og vissulega að það væri erfitt að vinna með krötum) en samkvæmt skilningi afa á framsókn þá átti hún alltaf frekar að halla sér til vinstri en hægri og varla þarf að fjölyrða um að hrakningar flokksins byrjuðu fyrir alvöru þegar Steingrímur fór frá og Halldór Ásgrímsson kaus að gera flokkinn að íhaldshækju í bankabixi og stríðsbrölti í fjarlægum löndum.

Guðmundur Steingrímsson hefur þvert á þetta verið að tala sig frá þessu bulli enda hlýtur strákurinn að finna það í framsóknarblóðinu sínu (sem er grænt og ekta ólíkt blóði tækifærissinnaðs formannsins) að flokkurinn getur ekki náð árangri með því að vera tannhjól í heimskustu og sturluðustu stjórnarandstöðu lýðveldissögunnar. Og svo á ég að reyna að trúa því að alvöru framsóknarfólki finnist barnabarn Hermanns og sonur Steingríms ekki eiga heima í flokknum! Er ekkert í lagi heima hjá ykkur? Ég held nú að nær væri að þetta pakk sem er að abbast upp á hann Gumma ætti að drulla sér úr flokknum sjálft og einbeita sér að því að eyðileggja aðra flokka. Má ég þá stinga upp á Hreyfingunni og Sjálfstæðisflokknum?

Þetta gæti alveg verið lengri lesning en ég nenni þessu ekki núna en þar sem ég hef verið viljugur til þess að berja á fals framsóknarfólki í gegnum árin vil ég bara minna á að í æðum mínum rennur jafn fornt framsóknarblóð og í honum Gumma vini mínum og bara í okkar genum leynist meiri og dýpri skilningur á framsóknarmennsku og þeim ungmennafélagsanda sem gerði flokkinn að því sem hann var og loksins þegar vor smurði sonur snýr heim úr vítisvist samfylkingarkrullsins þá eru einhverjir taðskegglingar og hælbítar gerðir út til þess að bregða fyrir hann fæti. Er framsóknarfólk almennt orðið svo gegnsýrt af geggjun síðustu ára í sögu flokksins að því er beinlínis illa við að hann verði göfugur á ný?

Vinur er sá er til vamms segir og þvert ofan í ranghugmyndir Höskuldar Þórhallssonar, Sigmundar Davíðs og annarra nýfrumunga í Framsóknarflokknum þá þykir mér vænt um flokkinn og þekki sögu hans betur en þessir tækifærissinnar. Ég á til dæmis sögu flokksins, Sókn og sigrar, skráða af afa í þremur bindum í tvíriti og ég veit að ég er fróðari um innsta kjarna þessa flokks en framagosarnir. Efast um að þeir hafi lesið þessar bækur eða viti yfirleitt að þær séu til. En ég hefði haldið að þessir gömlu bændur, sem nú er stefnt gegn Gumma, ættu að vita betur.
Heimurinn og lífið eru í stöðugri þróun en framsóknarfólk þarf bara að vita það eitt að þeirra bíður dauðinn ef það ætlar að halda því til streitu að vera taglhnýtingar Sjálfstæðisflokksins og þess duglausa formanns sem hann leiðir.

Þar fyrir utan eru einu góðu fréttirnar af Framsóknarflokknum undanfarið þær að formaður hans hefur fundið sér nýtt áhugamál í staðinn fyrir Icesave og það er hin úr sér gegna þjóðkirkja, perrar hennar og pukurkallar. Ég fagna því jafn innilega og höfðinginn í Hádegismóum og bíð spenntur eftir því að sjá hvort úthald Sigmundar Davíðs í þjóðkirkjuvörninni verður jafn magnað og í Icesave-froðunni. Fari svo er flokkurinn að vísu loksins sjálfdauður en þá finnum við alvöru framsóknarmennirnir okkur nýjan vettvang.


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff