»  off record  »  Egill Helgason klippti mig!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Egill Helgason klippti mig!
Fimmtudagur, 14. október 2010

Nei, sorrí, Smáfuglar. Öðlingurinn með gullhjartað er ekki að drýgja tekjur sínar með hársnyrtingum þegar hann er ekki að fara í taugararnar á ykkur. Og ekki ætla ég nú heldur að vera að væla yfir því að ég hafi verið slitinn úr samhengi eftir að hafa sjálfur unnið við blaðamennsku í rúman áratug. Mér þótti samt verra að flottasta útspilið mitt í Kiljunni var klippt út.

Varð líka svolítið hissa vegna þess að ég er viss um að Egill deilir þeirri skoðun minni sem ég viðraði með stæl en hafnaði svo á klippigólfinu. Skil samt alveg að tíminn í sjónvarpi er knappur og stundum verður eitthvað að víkja og þegar jafn skarpir menn og ég eru á ferð þarf alltaf að fórna perlum.

En málið er semsagt að ég notaði Art of War til þess að dissa markaðsfólk og finnst nett miður að sú ræða hafi ekki komið fyrir augu og eyru landsmanna. Nú vita allir sem þekkja mig að ég er nánast fordómalaus (hata alla jafnt) og ber ekki kaldan hug til nokkurrar manneskju. Að markaðsfólki undanskyldu enda efast ég oftast um að í þeim tilfellum sé yfirleitt um fólk að ræða. Það lið sem leggur fyrir sig „markaðsfræði“ og PR-mennsku á meira skylt við krabbameinsfrumur enda leggst þetta skammlaust á heilu samfélögin og étur þau upp að innan. Þetta er hyski sem þiggur laun fyrir að forheimska fólk og fær bónusa ef það getur slegið ryki í augu blaðamanna.

Þess vegna nýti ég öll tækifæri til þess að sparka (figurativly) í þetta lið og ef einhver dugur væri í mér myndi ég ganga enn lengra og beita það líkamlegu ofbeldi. Hvað um það. Ég dró auðvitað þetta pakk fram þegar ég talaði um Art of War og gerði lítið úr Kottler umleið og ég hæpaði Sun Tzu. Aðallega til þess að benda á að markaðsfræði er auðvitað öll byggð á reynslu úr hernaði þannig að það er galið að fólk sé að læra þetta í háskólum og haldi svo að það sé eitthvað voða, voða merkilegt.

Hvaða götustrákur sem er, sem hefur þurft að fara í gegnum lífið með hnefann á lofti, gæti unnið vinnu þessara aumingja mörgum sinnum betur. Þess vegna leyfði ég mér að halda því fram on camera að fólk sem legði fyrir sig markaðsfræði væri almennt verr gefið en annað fólk og alveg klárlega leiðinlegra. (Þetta skiptir mig svo sem engu en það hefði verið gaman að fá að segja þetta on national TV). Ég bætti því svo við að þeir Alexander, Hannibal, Rommel og Montgommery gætu verið frábærir markaðsmenn í dag en enginn markaðsmaður gæti unnið orrustu í stríði. Gedit?

Síðan datt líka út ein lítil neðanmálsgrein um Satansbiblíu La Vey en hún gekk nú bara út á kenningu sem mig minnir að sé viðruð í bókinni Helter Skleter (Hæ Yoko!) .Kenningin byggist á því að Polanski hafi fengið fíflið La Vey sem „tæknilegan ráðgjafa“ við gerð Rosemary´s Baby og La Vey hafi stýrt höndum Andskotans þegar hann klóraði Miu Farrow á rassinum (hæ Woddy!) á meðan hann barnaði hana. Manson morðin og slátrun Sharon Tate hafi því verið refsing þess í neðra fyrir að nota La Vey.

Gamanafessu.

Já! Við þetta má svo bæta að Bragi, frændi míns góða vinar Hrafns, hefur auðvitað ekki verið búinn að sjá innslagið mitt áður en hann lýsti því yfir við Egil að það væru bara einhverjar sissís á Fréttatímanum.


| 1:48 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff