»  off record  »  Áhrif ömmu á mannkynssöguna
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Áhrif ömmu á mannkynssöguna
Sunnudagur, 19. desember 2010

Amma mín hefur komið víða við á langri ævi og oftar en ekki verið í hringiðu heimsmálanna. Ég hef áður sagt frá því þegar hún sat og hlustaði á Fidel Castro halda eina af sínum lööööööngu ræðum á einhverju þingi Sameinuðu þjóðanna. Held að ræðan hafi tekið um fjórar klukkustundir í flutningi og amma sat undir þessu án þess að skilja orð en hún segist aldrei hafa séð fallegri mann á sviði.

Þá var sú gamle einhvern tíma á rangli um ganga höfuðstöðva SÞ í New York þegar Nikita Krusjev kom á spani og hrinti henni til hliðar vegna þess að honum lá svo á að komast á klósettið. Man ekki hvort að hann var bara í einum skó eða hvort þetta var við annað minna sögulegt tækifæri.

Allt þetta er þó hjóm miðað við það að þegar amma var ung stúlka í Reykjavík rakst hún á Winston Churchill á rölti sínu um borgina. Kallinn kastaði frá sér vindilstubbi sem hafnaði við tærnar á ömmu sem því miður gerði sér ekki grein fyrir mikilvægi þess logandi gullmola sem þar tók flugið. Hefði hún hirt stubbinn væri ég annað hvort ríkur maður eftir að hafa selt hann á eBay eða við feðgar værum með Churchill-DNA í höndunum og gætum nú klónað alvöru leiðtoga sem gæti dröslað vorri guðsvoluðu þjóð út úr hremmingunum.


| 12:42 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff