Can´t beat the feeling...
Laugardagur, 18. desember 2010
Bara svo það sé á hreinu og liggi fyrir skjalfest þá HATA ég fólk sem hatar Coca-Cola. Og já. Ég veit að þetta er í eigu ógeðslegra gyðinga, hefur rekið harða nýlendustefnu og "stolið" jólasveininum frá þeim sem vilja trúa því þótt að í tilfelli Íslendinga hafi fyrirtækið aðeins valtað yfir þrettán glæpamenn og perverta og breytt þeim í feitan, kátan kall með hvítt skegg og ískalda litla Kók.
Ég átta mig ekki alveg á hvað þetta hyski sem var að djöflast í Kók-lestinni var að meina en gef mér að þetta hafi verið hústökuhyskið sem hefur aldrei þurft að dýfa hendi í kalt vatn með ljótu beygluna sem kúkaði í kjörklefanum fremsta í fylkingu. Klárlega aumingjar sem fatta ekki að The Coca-Cola Company hefur ákveðið tilfinningalegt svigrúm til þess að vera ljótt kapítalista fyrirtæki vegna þess að það færir heiminum og hefur gert í heila öld besta gosdrykk í heimi. Gosdrykk sem er meira að segja önnur undirstaðan í þjóðardrykk íslenskra fábjána: vodka í Kók.
Ég meina. Öll vorum við tilbúin til þess að fyrirgefa O.J. Simpson að hafa í stundarbrjálæði slátrað fyrrverandi eiginkonu sinni og hinum hallærislega friðli hennar vegna þess að hann skemmti okkur svo vel sem Nordberg í Naked Gun-myndunum þannig að þetta með Kókið er ekkert. Og í guðana bænum veriði ekki að rugla Kók saman við þennan Steina í Kók. Kók hefur það nefnilega umfram íslenska banka og bissnissmenn að það getur ekki farið á hausinn.
Og svona hyski eins og ruddist út á göturnar í dag ætti að halda sig við popúlismann og mótmæla einhverju sem múgurinn getur fylgt sér á bak við. Kóka-Kóla nýtur meiri lýðhylli en svo. Beisikklí var þetta lið bara heppið að við Óli sem vann með mér á bensínstöðinni vorum ekki útúrkókaðir við stjórnvöl Kók-lestarinnar í dag. Þá væri verið að smúla þetta pakk upp úr Bankastrætinu í þessum töluðu orðum.
Já og bara svona í sögulegu samhnegi þá drakk Fidel Castro litla Kók í gleri. Og það eru til myndir af honum að teyga þennan uppáhaldsdrykk sinn. So fuck you very much!
| 23:34 |