Mánudagur, 13. desember 2010
Hrafn Jökulsson vinur minn vakti athygli á þessum mikilvæga Facebook-hópi, Við viljum endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála, nýlega með þessum orðum: „Svakalegasta réttarfarshneyksli 20. aldar. Væri fróðlegt að heyra sjónarmið dóms- og mannréttindaráðherrans Ögmundar Jónassonar. Leggið þessum málstað lið, gott fólk.“
Tek heilshugar undir þetta enda eru nú meiri líkur en minni á því að íslenskar sveitalöggur með hjálp nasista hafi klúðrað rannsókninni á þessu umtalaðasta sakamáli seinni tíma á Íslandi. Ég var smá gutti þegar Geirfinnsmálið var í hámæli en ákaflega meðvitað barn sem fylgdist vel með fréttum, bæði innlendum og erlendum, og var því nokkuð vel með á nótunum og efaðist ekki um að gæjarnir sem voru beittir harðræði í Síðumúlafangelsinu væru síðasta sort.
Frænka mín og frændi, nokkrum árum eldri, notfærðu sér þetta óspart og höfðu hemil á mér með því að hóta mér því að ef ég yrði ekki til friðs myndu þau láta Sævar Ciesielski koma og taka mig. Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikil ógn var í þessu fólgin og ég átti margar andvökunætur þar sem ég beið þess að illmenni þetta með skrýtna nafnið réðist að mér.
Sýn mín á bæði Sævar og Geirfinnsmálið hefur vitaskuld breyst töluvert á þeim um það bil 30 árum sem liðin eru frá því að Ciesielski var notaður sem Grýla á mig. Ég hef líka hitt manninn nokkrum sinnum við ýmis tækifæri og hann er alltaf jafn ljúfur og viðkunnanlegur þótt lífið hafi farið um hann ruddalegum krumlum.
Nú er svo heldur betur lag að fá æru Grýlu áttunda áratugarins uppreista þar sem magnaður popúlisti situr nú í stóli dómsmálaráðherra. Sendiði Ömma nú tölvupósta gott fólk og pressiði á endurupptöku!
| 9:50 |