»  off record  »  Hættulegur heimur hórunnar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hættulegur heimur hórunnar
Mánudagur, 13. desember 2010

Eins og frægt er orðið er bókin Hið dökka man eftir mig og félaga minn Jakob Bjarnar Grétarsson komin út að því er virðist mörgum til ama og andlegra óþæginda. Flestir þeir sem láta bókina fara í sínar fínustu virðast eiga það sameiginlegt að hafa ekki lesið hana og ætla sér það ekki. Samt telur þetta lið sig fullfært um að gaspra um það á bloggum og í kommentum á vefnum að við Jakob séum með bókinni um hinn dæmda melludólg Catalinu Ncogo að pússa glansmyndina af goðsögninni um hamingjusömu hóruna og upphefja og væntanlega normalísera vændi sem ægilega spennandi og kúl iðju.

Ég hef nú ekki nennt að elta ólar við þetta þvaður og vissulega er það rétt að Catalina dregur hvergi af sér í tilraunum sínum til þess að festa sig í sessi sem hina ofurkátu mellu en samt eru nú glufur í þeim framburði sem fólk getur hæglega potað í hafi það áhuga á því að kynna sér innihald bókarinnar.

Hvað varðar þær sakir sem á okkur Jakob eru bornar um að fegra vændi í bókinni langar mig að tilfæra nokkrar línur úr 14 kafla sem einhverra hluta vegna fékk heitið „Hættulegur heimur hórunnar“. Við hljótum að hafa verið fullir eða útúreyktir þegar við gerðum þennan kafla, svona miðað við fyrirframgefnar hugmyndir þeirra sem ætla ekki að lesa bókina en vita samt allt um hana:

„Auðvitað fylgja þessu samt alls konar vandræði enda gerist margt ljótt í undirheimunum. Þar er vont fólk á sveimi og er mjög dapurlegt að hórur geti ekki farið til lögreglunnar þegar svo ber undir því að hún gerir heldur ekkert í málinu. Ég þekki stelpu sem var barin og henni nauðgað. Hún var flutt meðvitundarlaus á spítala. Þegar lögreglan kom þangað og ræddi við hana var henni sagt að það væri ekkert hægt að gera í þessu vegna þess að hún væri hóra. Mér finnst þetta hræðilegt vegna þess að hún er manneskja þrátt fyrir það sem hún gerir. Hún þurfti hjálp en fékk ekki.“


„Ein starfsstúlkna Catalinu, kölluð N, sagðist við yfirheyrslu hjá lögreglu hafa stundað vændi áður en hún kom til Íslands:

„Fyrir mörgum árum síðan hefði hún verið fórnarlamb mafíunnar og hafi verið seld í vændi, en hafi síðan sloppið. Hún hafi síðan unnið eðlilega vinnu en hafi orðið óheppin og leitað í vændið aftur, af þeirri sjálfsbjargarviðleitni að geta framfleytt sér. Hún sagðist oft hafa viljað hætta í vændi og fá sér betri vinnu en það hafi ekki gengið. N var spurð hvort hún hafi leitt hugann að því hvort hún myndi stunda vændi í framtíðinni. Hún sagðist vilja hætta og með réttri aðstoð gæti hún það. Hún hefði hins vegar áhyggjur af því að ef hún fengi ekki aðstoð, og skorti peninga myndi hún leiðast út í vændi aftur. Það væri oft sagt meðal vændiskvenna: „Einu sinni hóra, alltaf hóra.““

„Ég veit um stelpu frá Úkraínu sem tveir menn fóru hryllilega illa með. Kúnninn fór með hana heim til sín, borgaði ekkert en barði hana í klessu og nauðgaði henni síðan. Félagi hans sat frammi í stofu meðan á þessu gekk og reyndi ekki að stöðva barsmíðarnar. Þegar vinur hans hafði lokið sér af og stelpan var hálf rænulaus kom hann og sagði henni ef hún vildi að hann bjargi henni frá félaga sínum að þá yrði hún að leyfa honum að ríða sér líka. Stelpan átti engra kosta völ vegna þess að hún var svo hrædd.“

Og Catalina sjálf hefur ekki sloppið alveg þótt hún vilji ekki viðurkenna að hún hafi lent í hættu í vændi sínu:

„Ég hef haft mikinn ama og ógn af þessum mönnum og einn þeirra sýndi mér einu sinni banatilræði. Hann réðist á mig og var mjög ofsafenginn, lamdi mig og reyndi að kyrkja mig. Ég leitaði ráða hjá lögmanni mínum, sem sagði mér að fara til lögreglunnar og ég held að hún hafi haft samband við manninn. Hann hringdi í mig og sagði, ef ég ætlaði að blanda lögreglunni í þetta, að þá myndi hann drepa mig. Ég þarf ekki að óttast hann á meðan ég er í fangelsi en það er aldrei að vita uppá hverju hann tekur þegar ég losna. Hann er snarbilaður. Ég hef ekki áhyggjur af mér, frekar því hvað ég muni gera ef hann heldur áfram að ógna mér. Og þá lendi ég í vandræðum eina ferðina enn. Ég gæti neyðst til þess að brjóta lög vegna þess að ljóst er að lögreglan mun ekkert gera fyrir mig í þessu máli. Hún veit alveg hver þetta er enda hefur hann ráðist að heimili mínu tíu sinnum.“


| 12:32 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff