Föstudagur, 24. desember 2010
Þar sem ég og Jakob félagi minn erum svo næs gæjar þá drifum við okkur í Kringluna á aðfangadag til þess að kaupa jólagjöf handa henni Catalinu vegna þess að auðvitað er nöturlegt að eyða jólunum í fangelsi. Og svona áður en „góða fólkið“ byrjar að fordæma okkur fyrir að reyna að gleðja dæmt glæpakvendi á jólum er rétt að minna á að þessi svokallaði frelsari sem á afmæli um þessar mundir var sérlega huggulegur við bersyndungar vændiskonur og sagði að við ættum að vera góð við alla.
Ég hef aldrei áður komið í Kringluna á aðfangadag og fannst óneitanlega svolítið fyndið að fylgjast með stressuðum körlum með áfengisskýið yfir höfðinu hlaupa um í fári að leita að jólagjöf handa konum sínum á kærustum á meðan ég lifi svo spennandi lífi að ég rölti rólegur í Tékk Kristal (eins og allir hinir fjölmörgu lesendur bókarinnar okkar Jakobs vita þá er Catalina sérlega mikið fyrir kristal) til þess að kaupa gjöf handa þeldökkri mellu. Samkvæmt skilgreiningu Catalinu vorum við auðvitað allir að kaupa gjafir handa hórum en förum ekki nánar út í þá sálma. Það eru jólin og svona.
Catalina kom svo til dyra, ásamt fangaverði, í bleiku, flöffí inniskónum sínum og knúsaði okkur og sagði: „Merry Christmas“. Jakob aulaðist til að spyrja: „How are you doing?“ Og fékk svarið: „Well, I´m in here.“
Þurfum ekki að hafa fleiri orð um það. Gleðileg jól bara.
| 12:49 |