»  off record  »  Langbesta líkamsræktin
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Langbesta líkamsræktin
Fimmtudagur, 16. desember 2010

Les mér til nokkurs óyndis á bloggi míns góða vinar Eiríks Jónssonar að hann liggur veikur heima. Hann notar heilsubrestinn til þess að rifja upp eldgamla Bakþanka sína úr Fréttablaðinu um líkamsrætarprógramm sem hann hannaði í Vesturbæjarlauginni.

Hann lætur þess þó ekki getið í nýja blogginu að prógrammið kallar hann EIR-form en ég get vottað að leið Eiríks til líkamsræktar er tær snilld. Aðallega vegna þess að maður kemst í form með lágmarksfyrirhöfn án þess að stíga fæti inn í líkamsræktarstöð. Eiríkur hafði á sínum tíma uppi áform um að markaðssetja EIR-formið með myndböndum og bókum og hefði hann látið verða af því er pottþétt að hann hefði meira að gera í fjarþjálfun nú sen sjálfur Gilzenegger.

Það vita það kannski ekki margir en Eiríkur er lífsleiknikennarinn minn og hann setti mig inn í EIR-formið fyrir margt löngu og ég hef aldrei náð öðrum eins árangri með minn beinabera og slappa skrokk og þá. Bloggaði um þetta árið 2003 þegar ég var á hátindi líkamsræktarinnar:

"Það trúa því kannski ekki margir en Eiríkur er ekki bara líkamsræktarfrömuður, heldur líka andansræktarfrömuður og er mjög ráðgefandi einstaklingur. Hann er nefnilega búinn að hugsa í svo mörg ár og hefur nú komist að niðurstöðu og er allur af vilja gerður til að stytta mér leið í gegnum hremmingar lífsins og miðla af reynslu sinni.

Hann bauð mér þess vegna á gratis Lífsleikninámskeið. Ég er að vísu fyrsti skjólstæðingurinn en ef allt fer vel hjá mér er EIR tilbúinn með bækur, myndbönd og mánaðarkúrs sem kostar bara 70.000 krónur. Einhverjum kann að þykja það skjóta skökku við að Eiríkur sé orðinn Lífsleiknimeistari en þegar haft er í huga að Björn Bjarnason innleiddi Lífsleikni í grunnskólum landsins verður þetta einhvern veginn sjálfsagt.

Ég er sem sagt hættur að drekka, syndi daglega og til þess að toppa þetta allt er ég byrjaður í líkamsræktarprógramminu EIRFORM. Saga EIRFORMsins er um ársgömul en í fyrra skrifaði Eiríkur Bakþankann Einn í formi á baksíðu Fréttablaðsins. Þar sagði hann frá því þegar hann, sem líkt og ég hafði aldrei á ævinni stigið inn á líkamsræktarstöð, frá því þegar hann uppgötvaði tækjaherbergið í Vesturbæjarlauginni:

Árangurinn spurðist út og EIR er "kominn með lærisveina sem fara í einu og öllu eftir prógramminu sem ég skapaði sjálfur og er að hugsa um að sækja um einkaleyfi á." Myndbandið sem hann ætlar að gefa út heitir "EIRFORM - fjórar æfingar sem breyta lífi þínu" en hann heldur því fram að þær geti breytt líkama sem er að verða eins og kókflaska í laginu í gyltan þríhyrning. Veit ekki með þríhyrninginn en handleggirnir eru allir að stælast og sixpackið er að koma aftur."

Kominn tími til að byrja aftur í EIRFORMINU.


| 12:04 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff