»  off record  »  Sonur heiðingjans á skólabókasafninu
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sonur heiðingjans á skólabókasafninu
Þriðjudagur, 14. desember 2010

Sem heiðingja er mér meinilla við að börnunum mínum sé gert að fara í krikju á skólatíma. Ég samt svo öruggur með mitt trúleysi að ég hef ekki þörf fyrir að gera andúð að trú að sérstakri ofsatrú og nenni ekki amast við einfeldningunum sem kjósa að trúa. Þannig að mér er alveg sama þótt krakkrnir teikni engla í myndmennt eða syngi Í Betlehem er barn oss fætt á litlu jólunum. Þetta var lagt á mig sem barn og ég lifði það af og frelsaðist ekki til kristinnar trúar.

Síðan er það auðvitað hlutverk foreldra að búa börn sín sem best undir ógeðslegan heiminn sem bíður þeirra og brynja þau fyrir öllum áróðri hvort sem hann kemur frá Sjálfstæðisflokknum, kirkjunni eða Toy´s R´Us. Þannig að ekki hvarflar að mér að pakka afkomendum mínum í bómull og reyna að leyna þau því að alls konar trúarnöttarar, sumir fram úr hófi fjölþreifnir meira að segja, gangi hér lausir.

Ég dreg samt línuna við kirkjuheimsóknir vegna þess að sjálfur veit ég fátt leiðinlegra en að dúsa í kirkju og fer aldrei ótilneyddur í þannig hús. Ég hef því alltaf gefið syni mínum leyfi til þess að skrópa í skólanum þennan eina dag í desember þegar krakkagreyjunum er smalað saman í kirkju. Ég hef meira að segja hringt hann inn veikur sjálfur til þess að forða honum frá þessu og ekki misst svefn yfir því að vera þannig að brjóta boðorð númer eitthvað.

Strákurinn minn hugsaði sér því gott til glóðarinnar og var búinn að plana heilmikinn PlayStation dag á fimmtudaginn þegar bekkurinn hans fer í sína árlegu visitasíu í Neskirkju. En nú eru andtrúar- klikkhausarnir búnir að hafa þetta frí af honum með taugaveiklun sinni. Fékk þennan tölvupóst frá skólastjóra Melaskóla áðan:

Kæru foreldrar.
Samkvæmt dagskrá sem send hefur verið til ykkar fer hver bekkur eina kennslustund eða svo í Neskirkju á fimmtudag. Fram hefur komið að ekki vilja allir foreldrar að börn þeirra fari í kirkjuferðina. Þeim börnum verður boðið á bókasafn skólans þar sem kennsla/fræðsla undir stjórn kennara verður á meðan á kirkjuheimsókninni stendur.

Semsagt ekkert frí. Bara skólabókasafnið. Alveg kæmi mér svo ekki á óvart ef tíminn þar yrði notaður í kristnifræðslu. En við feðgar æðrumst þó eigi. Allt er betra en kennslustund í kirkju.


| 14:30 |
komment

Og hefur hann ekki verið dreginn með ömmu sinni í kirkju?

Nr. 1 | Ásta | 14.12.2010 | 15:06:05 | [+] |

Ég skil ekki vandamálið. Af hverju geturðu ekki alveg eins logið veikindum upp á barnið vegna bókasafnastíma?

Nr. 2 | Eva Hauksdóttir | 14.12.2010 | 18:37:30 | [+] |

Hér er að sjálfsögðu haldið uppi járnaga og skróp ekki liðið nema í ýtrustu neyð eins og kirkjuferðum.

Nr. 3 | Tóti sjálfur | 14.12.2010 | 22:13:03 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff