»  off record  »  Áramótablús redux
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Áramótablús redux
Laugardagur, 01. janúar 2011

Fyrir tæpum tíu árum skrifaði ég áramótablús og hef endurbirt hann af og til á áramótum vegna þess að það tekur því ekki að skrifa nýjan vegna þess að þetta er alltaf eins og ekkert breytist. Þannig að hér er þetta eina ferðina enn með þeirri breytingu að í stað Markúsar Arnar höfum við fengið Pál Magnússon. Gaman að því.

Mér leiðast flest mót. Sérstaklega íþróttamót og mannamót en fyrst og fremst mót mánaða og ára. Þessi tímamót virðast hafa þann tilgang einan að afmarka þjáningar og leiðindi á lífsleiðinni og auðvelda lánadrottnum að halda utan um skuldir vorar, reikna vexti og dráttarvexti ofan á þær og innheimta eftirstöðvar fortíðarsukks, sem væri auðvitað bara nútíðarsukk ef það þyrfti ekki alltaf að vera að rjúfa þá sögulegu samfellu, sem fábreytileg tilveran er, með mánaða- og áramótum.

Árið skiptist í 52 vikur og innan þess eru vikumótin einna meinlausust og einkennast aðallega af landlægri sunnudagsþynnku og angistinni sem fylgir því að byrja nýja vinnuviku á mánudögum. Mánaðarmótin eru öllu verri en þá skiptast á augnabliki á skin og skúr í lífinu; launin detta inn á bankareikninginn og út aftur augnabliki síðar, þegar þjónustufulltrúinn gerir manni þann greiða að dreifa uppskeru þrældómsins jafnt á miskunnarlausa lánadrottnana, sem eru jafn misjafnir og þeir eru margir en lausleg könnun mín bendir þó til þess að það sé þægilegast að skulda meðlög og verst af öllu að lenda í vanskilum hjá LÍN sem fer ekkert í grafgötur með það að hann hatar mann og vill refsa manni endalaust fyrir að hafa að vera að slæpast í námi.

Mánaðarmótin eru þó hátíð samanborið við bölvuð áramótin, en þá rennur upp einhver svona skelfileg "stund sannleikans" þar sem farið er yfir hörmungar ársins; fjölmiðlarnir rifja upp sameiginlegar martraðir okkar á meðan banka- og lánastofnanir troðfylla póstkassana af yfirlitum yfir einkahrylling liðins árs, þannig að maður getur meira að segja gerst völva og spáð fyrir um hversu morkið sultarlífið verði í afborgunarhelvítinu næstu árin. Blindfullur og aðframkominn af þunglyndi, angist og sorg gónir svo hinn íslenski meðljón ofan í vodkablönduna sína á gamlárskvöld og ákveður að bæta ráð sitt með rausið í Páli Magnússyni í bakgrunninum; hætta að reykja, drekka minna, klippa kreditkortið, skokka a.m.k. þrisvar á árinu, drekka meira vatn og hvað eina annað sem getur lyft tilverunni á æðra plan.

Sú iðja að standa eins og glópur á áramótum, líta um öxl og reyna um leið að spá fyrir um hið óorðna er fánýt en lýsandi fyrir það hversu mikinn óþarfa ys og þys við erum með út af einhverju jafn sjálfsögðu og að 1. janúar taki við af 31. desember. Þetta er alltaf í meginatriðum eins, ár eftir ár og dag eftir dag, ef því er að skipta.
Íslendingar eru enn sem fyrr grobbnir vitleysingar og oflátungar og í útlöndum er saklaust fólk brytjað niður af einbeittum vilja og geðveiki. Stundum meira að segja með sérstakri blessun Íslendinga. Það er ekki mikið varið í að staldra við og rifja þetta upp, sérstaklega í ljósi þess að það eina sem annálar gera er að færa manni heim sanninn um að mannkyninu er fyrirmunað að læra af sögunni og reynslunni.

Vituð þér enn eða hvað?


| 13:04 |
komment

Very good post, thanks a lot for sharing with us I really appreciate.

Nr. 1 | Sarchi | 30.01.2012 | 23:06:29 | [+] |

Very useful information, thanks a lot.

Nr. 2 | Muebles de Cocina | 2.02.2012 | 20:53:48 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff