»  off record  »  febrúar 2011
off record
febrúar 2011

a long time ago...
Öðlingurinn, ég
Fimmtudagur, 10. febrúar 2011

Ég er svo útsmoginn að ég sé úr mílu fjarlægð hvað flestum þeim sem skrifa undir merkjum Öðlingsins í Fréttablaðinu gengur til. Þetta eru ýmist menn sem langar að virka voða næs og góðir til þess að eiga sjéns á að fá að ríða „góðu konunum“ eða kúgaðir gaurar sem búa í stelpuherbergi innréttuðu af konunum þeirra (barnið sem skrifaði í dag er augljóslega undanskilið) og eru annað hvort að vonast til þess að skora prik hjá konunum sínum eða tengdamæðrum.

Öngva á ég nú tengdamóðurina um þessar mundir og bý einn en mig langar til þess að vera Öðlingur. Þið megið geta einu sinni hvers vegna. (Já, já. Ég veit að þetta er cheap en karlmenn hafa aldrei hikað við að beita smá blekkingum til þess að komast yfir konu spyrjið bara einhvern Öðlinginn, umhverfisleynilögguna sem reið sig í gegnum Saving Iceland eða Arabann sem var dæmdur fyrir nauðgun af því hann þóttist vera gyðingur til þess að fá að sænga með Ungfrú Tel Aviv 1956.)

Anyhu. Þar sem ég hef skrifað bók um mellu er enginn hætta á að mér verði boðið að vera Öðlingur í Fréttablaðinu (allt í lagi svosem been there done that) 2004 nánar tiltekið. Þannig að eins og sannur karlmaður bít ég í skjaldrendur og skrifa mig bara inn sem Öðling á mínum eigin vettvangi.

ÖÐLINGURINN

Ég er femínisti! Já, ég sagði femínisti, Jakob Bjarnar Grétarsson. Sorrí. Þannig er nú bara það. Ég er einfaldlega femínisti vegna þess að ég er jafnréttissinni og er mjög vel meðvitaður um að jafnrétti hefur langt í frá verið náð. (Erum við ekki bara öll femínistar inn við beinið? Jú. Sumir vita það bara ekki).

Ég á þrjár dætur og einn son og ég elska þau öll jafn heitt og innilega og er viss um að stelpurnar mínar geta orðið hvað sem þær vilja í framtíðinni. Ekkert síður en strákurinn. Ég vil samt auðvitað ekki að dætur mínar skaki sig naktar við súlu eða leiðist út í vændi ekkert frekar en ég kæri mig um að sonur minn verði River Phoenix í My Own Private Idaho. (Vill einhver faðir barninu sínu það? Blasir ekki svarið við?) Ég held svei mér þá að svona no brainer dæmi hjálpi málstaðnum (sem er okkar allra) nákvæmlega ekki neitt.

Skítt með það. Þetta er leiðinleg umræða. Snúum okkur aftur að mér. The Alpha Male í þessu dæmi. Ég er blaðamaður. Blaðamenn eru ekki góðir menn (og blaðakonur eru ekki góðar konur). Við beitum tungumálinu, elsta og öflugasta kúgunartæki feðraveldisins, til þess að halda þessum óværum sem algóður Guð skóp úr einu rifbeini okkar niðri. Voru ekki þær ógeðslegu rembur sem færðu Biblíuna í letur á sínum tíma einhvers konar blaðamenn síns tíma sem sérhönnuðu tilmæli að ofan þannig að auðveldara væri að kúga og brenna konur og kynvillinga í gegnum aldirnar og jafn vel ennþá ef út í það er farið?

Í dag skrifum við bara fréttir um að Britney Spears hafi farið út í Hagkaup nærbuxnalaus og hafi glent klofið á sér framan í myndavélalinsur papparassa sem seldu svo myndina á milljón. Hverjum er það að kenna? Britney? Ljósmyndaranum? Blaða(manninum) konunni á Vísi .is sem veit að fleiri koma og skoða myndina af píkunni á Britney en frétt af Wali Safi sem á að reka út í opinn dauðann til Grikklands eða eitthvað? Er það ekki ykkur að kenna sem sækið í þetta? Og eru karlar á Íslandi í alvörunni svona margir að þeir standa einir undir nettraffíkinni í frægðarklámið? Eða stelast nokkrar konur með? Þá væntanlega bara til þess að hneykslast. Rétt eins og allir góðu karlarnir.

Bara svo það sé á hreinu (hæ, stelpur! Winkwink nod nod) þá er ég ekki svona blaðamaður sem hefði skrifað Bifflíuna eða sé ástæðu til þess að flytja nýjustu fréttir af skuðinu á Lady Ga Ga. (Ah, fokk. Ég skrifaði bókina um Catalinu. Þar fór það). En samt. Ég tek blaðamanninn mjög hátíðlega og er alltaf að leita að sannleikanum sem er soldið eins og að berjast við vindmillur vegna þess að hann er ekki til nema í einhverjum sérútgáfum í sjúku höfði hvers og eins.

Ég veit semsagt að ég á ekki að reyna að hafa áhrif á samfélagið, heiminn eða gang mála. Ég á bara að standa ískaldur til hliðar og lýsa því sem gerist. Hver, hvar, hvenær, hvers vegna, hvað næst?. Samt ef það er Eiður Smári þá megiði ekki vita hver. You know the drill. En af því að ég er svo góður og skilyrtur femínisti þá get ég stundum ekki stillt mig og gríp inní og reyni að hafa áhrif. Svona svipað og þegar hann Guð dembdi Nóaflóðinu á okkur af því að við vorum svo mikil ógeð. Hvað er í gangi núna? Er hún Guð sofandi? Ef einhvern tíma var tilefni til þess að sökkva öllu helvítis draslinu þá er það núna! „Hún Guð! Móðir! Hví hefur þú yfirgefið mig?“

Inngrip mín eru samt auðvitað ekki merkileg og ekki vega þau þungt en ég reyni samt að beita tungumálinu, þessu fallíska apparati sem á merkingarmiðju sína í klofinu á mér, Mubarak og Obama. Þess vegna skrifa ég alltaf Jónína Jóns alþingiskona (ekki alþingismaður), Sigga Sig blaðakona (ekki blaðamaður) og svo framvegis.

Er nú bara að pæla í þessu núna vegna þess að fyrr í kvöld spurði prófarkarlesaran (hún) mig hvort ég væri viss um að "blaðakonur" vildu vera blaðakonur en ekki „blaðamenn“? Hvern andskotann veit ég hvað þær vilja? Þær eru konur og þá skulu þær vera konur jafnvel þótt þær vilji vera menn. (Eða memm. Hæ stelpur! Broskall) Ég lét „blaðakona“ standa með góðri samvisku vegna þess að ég tek þetta alla leið og reyni alltaf að fá viðmælendur mína (sem eru oftar konur en karlar (vegna þess að ég hata að tala við karla. Þeir eru svo heimskir og leiðinlegir)) til þess að segja „fólk telur“ frekar en „menn telja“. Ég er alltaf að reyna að bjarga heiminum með eina vopninu sem ég kann að fara með. Tungumálinu sem ég er jafn fimur með og typpið á mér. (Eðlilega þetta er einn og sami hluturinn. Tvíeinn guð sem er stundum linur og stundum grjótharður. Fer bara eftir því hvort við erum í nýja testamentinu eða því gamla). Djók!

Eins og sannur skæruliði fer ég huldu höfði, læt lítið fyrir mér fara og berst í skjóli nætur. Og þess vegna fæ ég engar þakkir og fæ ekki að vera Öðlingur vegna þess að ég kýs að berjast af alvöru eins og sannur byltingarsinni en ekki karl sem er tilbúinn til þess að rífa úr sér hjartað á síðum Fréttablaðsins og þykjast pissa sitjandi rétt á meðan hann fær að leggja inn kynlífsbeiðni hjá einhverjum trylltum sellum.

Ég er ekki sellát vegna þess að ég er femínisti!


Öðlingurinn? I fucked him!


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff