»  off record  »  mars 2011
off record
mars 2011

a long time ago...
Pólitíska ráðningin mín
Fimmtudagur, 31. mars 2011

Ósköp hefur mér þótt nöturlegt að fylgjast með kommónistum á vefmiðli djöflast á útvarpsstjóra og fréttastjóra RÚV fyrir að ráða í sumarafleysingar bráðhuggulega, dökkhærða hnátu með augljósan skjáþokka.

Sérstaklega í ljósi þess að stúlkan er að fara að starfa á íþróttafréttadeild RÚV og mér er fyrirmunað að átta mig á hvernig hún ætlar að fara að því að vera pólitískt hlutdræg þegar hún flytur fréttir af sprikli spengilegra hárlausra apa fyrir feita og jafnvel enn greindarskertari nakta bavíana sem halda að þeir komist í form við það eitt að horfa á fólk svitna.

En kommarnir vita auðvitað meira en ég og kannski lagði Steingrímur J. Sigfússon, andlegur leiðtogi þeirra, grunninn að hjörð jafnleiðinlegasta fólks sem saman hefur komið í íslenskri pólitík á meðan hann las íþróttafréttir í Sjónvarpinu. Kannski er þetta stórhættulegt og öflugt starf sem má misnota stórkostlega í pólitískum tilgangi. Sjáum til.

Öðrum þræði skil ég bolsana svo sem vegna þess að einu sinni, endur fyrir löngu, varð prinsippmaðurinn faðir minn næstum þess valdandi að ég fékk ekki vinnu á bensínstöð. Og hvar væri ég nú í dag ef ég hefði ekki rétt nýorðinn 16 ára fengið að læra á bensíndælur hjá ESSÓ á Ártúnshöfða?

Nánast öll þau tæpu 40 ár sem ég hef dregið andann hefur pabbi unnið á skrifstofu ESSÓ/N1 þannig að fólki þótti ekkert sjálfsagðara en að hann kæmi frumburði sínum í það eftirsótta sumardjobb sem bensínafgreiðsla var hér á árum áður. Illu heilli er klíkuskapur eitur í beinum pabba þannig að hann tók mjög fálega í þetta. Sem betur fer var Olíufélagið hf innan vébanda SÍS á þessum árum og með sterkar tengingar við Framsóknarflokkinn þannig að fyrrverandi alþingismaðurinn og Tímaritstjórinn hann afi minn gekk í málið. Honum rann framsóknarblóðið til skyldunnar og ræddi það við Vilhjálm Jónsson, þáverandi forstjóra ESSÓ, hvort ekki væri hægt að koma hinum unga nafna sínum á bensínstöð.

Þeir sem þekkja Framsóknarflokkinn vita auðvitað hvernig þessu máli lauk og þau 11 ár sem ég vann hjá ESSÓ eru vitaskuld legendary og þá ekki endilega in a good way.

Hvað um það. Þessi rampólitíska ráðning á bensíntitti var ekki slæm fyrir hinn almenna neytanda. Eða á ég að trúa því að eldsneytiskaupendur í Kópavogi hefðu viljað missa af þjónustu eins flinkasta bensínkalls sem sögur fara af? Útimanns (starfsmaður á plani er seinni tíma kjaftæði) sem gat verið með 6 byssur í gangi í einu, að því gefnu að tvær væru í sama díesel-trukknum, og fyllt á 2 kg gaskút í leiðinni?

Æ dónt think só!

Kannski leynist ný Edda Andrésdóttir í þessari ungu Pálsdóttur og eigum við bara að taka sjénsinn á því að missa af henni vegna þess að hún er dóttir pabba síns? Ég meina það geta ekki allir átt afa í framsókn.


Hættulegir útlendingar með böns af monní
Fimmtudagur, 31. mars 2011

Voðalega hljóta sumir útlendingar sem eiga peninga að vera fáránlega heimskir. Þessir sem Helgi Seljan sagði frá í Kastljósi í gær og fengu allt góða fólkið á Íslandi til þess að míga á sig af hræðslu hafa samt greinilega farið svakalega illa út úr genalottóinu.

Ég meina. Ef maður hefði það sem samsvarar fjárlögum íslenska ríkisins í vasanum sem skotsilfur myndi maður þá ekki frekar kaupa sér eyju í Karíbahafi og liggja svo bara sólbakaður í sandinum og drekka Bacardi Breezer frekar en að rembast við að kaupa sér ríkisfang í gjaldþrota, nánast óbyggilegu rokrassgati lengst úti í ballarhafi?

Þetta er svo galið að vissulega hljóta að vera stórir, feitir og ljótir maðkar í þeirri mysu sem þessi Sturla gelhaus, sem lítur út eins og fasteignasali í svakastuði árið 2006, er að bera á borð fyrir fjársvelta, gráðuga og grunnhyggna Íslendinga.

Þótt þetta blasi við er mér samt fyrirmunað að skilja uppnámið og taugaveiklunina. Hvers vegna í ósköpunum mega ekki útlendingar bara kaupa það sem þeim sýnist í þessu sorglega Kolaporti sem Ísland er? Eru útlendingar með peninga virkilega svona miklu hættulegri og verri en Íslendingar með uppdiktaða Excel-peninga? Eru „ríkir“ Íslendingar svona rosalega góðir og umhugað um afkomu þjóðar sinnar og verndun náttúruauðlinda landsins? Ha?

Sorgleg dæmin hafa nú sannað að í raun ætti frekar að binda í stjórnarskrá að Íslendingum sé með öllu óheimilt að kaupa upp og veðsetja fiskinn í sjónum, vatnið og jarðvarmann okkar. Að maður tali ekki um tryggingafélög, banka, tuskubúðir og kjötfarsverksmiðjur. Enginn útlendingur, ekki einu sinni Bernie Madoff eða Ponzi gamli, gætu mögulega farið verr með þetta en meðal nýríkur Íslendingur. Ekki sjéns.

Áður en fólk fríkar út í útlendingahræðslunni ætti það ef til vill að líta sér nær fyrst og pæla aðeins í hversu vandaðir landar vorir eru þegar þeir komast í fé og auðlindir. Útlendingarnir eru ekki rassgat verri en við enda er allt fólk í grunninn illt og til alls líklegt en einhvern veginn virðast nú útlendingar almennt fá betra uppeldi en Íslendingar og eru því mun líklegri til þess að hegða sér eins og siðað fólk. Þótt þeir hafi fæðst gráðugir og vondir. Eins og við.


Virðing og TRAUST
Miðvikudagur, 30. mars 2011

Allir eru að tapa sér yfir formannskjöri í VR. Mér er þó hvergi brugðið enda hef ég fyrir löngu áskilið mér rétt til þess að líta niður á félaga í VR (ekki pabba samt) með því að hafa tæpa hálfa starfsævi mína verið í Dagsbrún með sorgarrendur undir nöglum og smurolíudrullu á höndunum. Við verkamennirnir erum voða lítið fyrir að mæna upp á fólk sem er verzlunar-eitthvað = bjánar og aumingjar.

Skrifstofuliðið sem gerði okkur strákunum og stelpunum á planinu lífið leitt var einmitt flest í VR þannig að við gáfum ekki túskilding fyrir þann félagsskap. Ekkert frekar en okkar eigið verkalýðsfélag svosem enda veit allt fólk sem hefur þurft að hafa fyrir lífinu að verkalýðsfélögin eru komin ljósár frá upprunalegum tilgangi. SJÁIÐI JEPPANA!!!

Þrátt fyrir allt þetta finnst mér samt ótrúlegt að niðurlæging félagsins sem fékk einhverja markaðsnjóla til þess að leggja út af skammstöfun sinni með orðunum Virðing og Réttlæti geti endalaust haldið áfram. Hélt í bjartsýni minni að botninum hefði verið náð fyrir um það bil tveimur árum. Auðvitað heimska af hálfu manns sem hefur gist átta nætur á Vogi. Botninn getur alltaf færst neðar.

Trú samt ekki að fólk sem kaus í VR-kosningunum hafi verið með haglabyssuhlaup í hnakkanum á meðan það greiddi atkvæði þannig að þá er það bara heimskt. Eins og við Óli á bensínstöðini höfum vitað í ca 20 ár.

Amma mín hefur oft sagt við mig að hún treysti ekki fólki sem drekkur ekki og þar sem Humprey Bogart notaði sömu mælistiku á mannkosti hef ég aldrei dregið þetta í efa og forðast templara og bindindisfólk eins og börn forðast Ágúst Magnússon. Ég er samt umburðarlynari en amma og Bogie en manni sem var orðinn formaður í Biblíufélagi fyrir þrítugt myndi ég ekki treysta fyrir hálfu Prins Póló.

Ég er bara of vel lesinn og lífreyndur. Enda var ég í Dagsbrún (verkalýðsfélaginu sko). Æ, já. Svo var ég líka blaðamaður hjá Dagsbrún sem varð 365 sem... æ þetta er tragedía.


Apocalypse Already!
Þriðjudagur, 29. mars 2011

Einhver talanglöggur falsspámaður í henni Ameríku hefur boðað okkur heimsendi þann 21. maí. Þessi apaheili er jafn áreiðanlegur og brjálæðingurinn sem varaði við heimsendi í Tinna-bókinni um Dularfullu stjörnuna. Ef klukka er stopp hefur hún rétt fyrir sér tvisvar á dag og hvorgur þessara manna hefur beinlínis rangt fyrir sér. Þeir eru bara of seinir. Eins og klukkan í bílnum mínum.

Heimsendir hefur nefnilega þegar orðið. Hann er að baki. Sjálfstæðismenn, sem í gegnum áratugina hafa hossað vanæfum körlum á kostnað kelligna, eru allt í einu brálaðir yfir að Jóhanna Sigurðardóttir hafi ráðið karl sem var hæfari en kjelling í eitthvert djobb. Ef stuttbuxnadeildin meinar þetta er heimur okkar hvítu, gagnkynhneigðu karla hruninn og ekki vil ég reyna að komast áfram í heimi frekra, vanhæfra kellinga sem eru bakkaðar upp af Birni Bjarnasyni. Sorrí. Þá fer ég fyrr í 37 gráðu heitt bað og opna á mér slagæð.

Sjálfstæðismenn eru líka trylltir yfir því að Ísland sé aðili að því að fulltrúar hins frjálsa, góða heims séu að bombardera nauðgara (þetta væru rökin fyrir árásum ef Davíð og Halldór hefðu ákveðið þær) Gaddafís, vopnaða viagra og smokkum. Þetta er sama liðið og réði sér ekki fyrir kæti þegar Saddam var sprengdur og hengdur í Írak.

Sorrí. Heimsendir er búinn. Þið misstuð af honum og við stöndum nú ringluð yfir moldum heimsmyndar okkar.


Ég segi NEEEEEEEIIIIIIIIIIII
Laugardagur, 26. mars 2011

djók


Samtal mitt við nasista
Föstudagur, 18. mars 2011

Skrapp um daginn í Hveragerði að fá mér ís. Rakst þar á rasista og átti við hann stutt spjall. Jósafat Ari Jónsson er í saumaklúbbnum Arbeit macht Frei/Combat 88 en talan vísar ekki í Heil Hitler heldur samanalgða greindarvísitölu klúbbfélaga.

Jósafat hefur tjáð sig um innflytjendamál á Íslandi í fjölmiðlum undanfarið og þótt helst til fordómafullur og eiginlega bara rasískur. Hann ræddi við Badabing! um stefnu saumaklúbbsins sem er hálfgert leynifélag Suðurnesjamanna og Hvergerðinga.


Hvað gerið þið í þessum samtökum?
Það er leyndó en þetta eru mjög pólitísk samtök en við erum ekkert að skiptast mikið á skoðunum vegna þess að við erum mjög sammála um að hrunið sé gyðingum að kenna og að ESB sé klíka svertingja og múslima sem ætla að leggja undir sig Evrópu. Við tölum mikið um fatatísku og þá helst camouflage-föt sem við erum mjög mikið fyrir. Við reykjum líka soldið af grasi og skiptumst á camouflage-fötum. Ég er tildæmis í camouflage-g streng af konunni minni í dag og mágkona mín sem er líka barnsmóðir mín er í felulita hlýrabolnum mínum. Hann var samt einu sinni hvítur en er orðinn mjög töff eftir alla Heinz bökuðubaunasósublettina. Stundum komum við saman á morganan eftir góðan reyk og hringjum í símatímann á Útvarpi Sögu. Okkur þætti mjög gaman að fá að vera með þátt á Sögu og kannski getum við fengið slottið hans þarna meindýraeyðis þegar hann hættir. Það væri mjö töff afþví að við erum eiginlega líka meindýraeyðar. Bara rotturnar sem við viljum drepa eru ekki með skott. Fattaru?Við erum sjö í þessum klúbbi en ég má ekki segja hvað við erum mörg.

Þú hefur verið kallaður rasisti í fjölmiðlum. Ert þú rasisti?
Nei ég hef aldrei verið með svoleiðis hárgreiðslu en ég tala oft um mig sem þjóðernissinna, sérstaklega á AA-fundum í Árbæjarkirkju þegar ég tek mér pásu frá jónunum. Ég hata ekki aðra kynþætti en mér finnst að þeir geti bara verið heima hjá sér í 101-Reykjavík. Við erum bara að passa upp á okkar, þágufallssýkina og matarmenninguna með pizzunum og hamborgurunum. Og mér finnst ekki fair að dæma mig fyrir að segja að Hitler hafi gert margt gott. Hann var mjög flínkur kall og hafði mikil áhrif á listasöguna með málverkum sínum af hundum með þverslaufur. Svo lifa margar frábærar pasta-uppskriftir hans enn í dag. Hann fékk margar góðar hugmyndir hann Adolf. Og auðvitað Trabantinn sem hann hannaði. Góðir bílar.

Hvað telst að vera Íslendingur?
Við erum Aríar og í mínum huga er Íslendingur svona menn eins og Jón Valur Jensson og fjármálaséníið Guðmundur Franklín. Svona menn sem vita að við erum sjálfum okkur nóg og þurfum ekkert á umheiminum að halda. Sannur Íslendingur veit að útlendingar eru vondir og hættulegir. Áfram Ísland! Ekkert Icesave. Ekkert ESB! Íslendingar drekka líka bara Kók sem er gert úr íslenska vatninu sem er það tærasta í heimi.



First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff