»  off record  »  Apocalypse Already!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Apocalypse Already!
Þriðjudagur, 29. mars 2011

Einhver talanglöggur falsspámaður í henni Ameríku hefur boðað okkur heimsendi þann 21. maí. Þessi apaheili er jafn áreiðanlegur og brjálæðingurinn sem varaði við heimsendi í Tinna-bókinni um Dularfullu stjörnuna. Ef klukka er stopp hefur hún rétt fyrir sér tvisvar á dag og hvorgur þessara manna hefur beinlínis rangt fyrir sér. Þeir eru bara of seinir. Eins og klukkan í bílnum mínum.

Heimsendir hefur nefnilega þegar orðið. Hann er að baki. Sjálfstæðismenn, sem í gegnum áratugina hafa hossað vanæfum körlum á kostnað kelligna, eru allt í einu brálaðir yfir að Jóhanna Sigurðardóttir hafi ráðið karl sem var hæfari en kjelling í eitthvert djobb. Ef stuttbuxnadeildin meinar þetta er heimur okkar hvítu, gagnkynhneigðu karla hruninn og ekki vil ég reyna að komast áfram í heimi frekra, vanhæfra kellinga sem eru bakkaðar upp af Birni Bjarnasyni. Sorrí. Þá fer ég fyrr í 37 gráðu heitt bað og opna á mér slagæð.

Sjálfstæðismenn eru líka trylltir yfir því að Ísland sé aðili að því að fulltrúar hins frjálsa, góða heims séu að bombardera nauðgara (þetta væru rökin fyrir árásum ef Davíð og Halldór hefðu ákveðið þær) Gaddafís, vopnaða viagra og smokkum. Þetta er sama liðið og réði sér ekki fyrir kæti þegar Saddam var sprengdur og hengdur í Írak.

Sorrí. Heimsendir er búinn. Þið misstuð af honum og við stöndum nú ringluð yfir moldum heimsmyndar okkar.


| 0:02 |
komment

Þetta er rangt. Það er verið að benda á að gagnrýnin á sínum tíma hafi ekki byggt á málefnalegri afstöðu heldur hentistefnu og populisma. Auðvita eru sjálfstæðismenn ekkert á móti því að bomba Líbíu né að veitingavaldið vegna ráðninga þurfi að taka mið af einhverjum jafnréttislögum.

Nr. 1 | Birgir | 29.03.2011 | 14:57:50 | [+] |

And what do you think this is? Real life?

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 30.03.2011 | 21:30:06 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff