Fimmtudagur, 31. mars 2011
Voðalega hljóta sumir útlendingar sem eiga peninga að vera fáránlega heimskir. Þessir sem Helgi Seljan sagði frá í Kastljósi í gær og fengu allt góða fólkið á Íslandi til þess að míga á sig af hræðslu hafa samt greinilega farið svakalega illa út úr genalottóinu.
Ég meina. Ef maður hefði það sem samsvarar fjárlögum íslenska ríkisins í vasanum sem skotsilfur myndi maður þá ekki frekar kaupa sér eyju í Karíbahafi og liggja svo bara sólbakaður í sandinum og drekka Bacardi Breezer frekar en að rembast við að kaupa sér ríkisfang í gjaldþrota, nánast óbyggilegu rokrassgati lengst úti í ballarhafi?
Þetta er svo galið að vissulega hljóta að vera stórir, feitir og ljótir maðkar í þeirri mysu sem þessi Sturla gelhaus, sem lítur út eins og fasteignasali í svakastuði árið 2006, er að bera á borð fyrir fjársvelta, gráðuga og grunnhyggna Íslendinga.
Þótt þetta blasi við er mér samt fyrirmunað að skilja uppnámið og taugaveiklunina. Hvers vegna í ósköpunum mega ekki útlendingar bara kaupa það sem þeim sýnist í þessu sorglega Kolaporti sem Ísland er? Eru útlendingar með peninga virkilega svona miklu hættulegri og verri en Íslendingar með uppdiktaða Excel-peninga? Eru „ríkir“ Íslendingar svona rosalega góðir og umhugað um afkomu þjóðar sinnar og verndun náttúruauðlinda landsins? Ha?
Sorgleg dæmin hafa nú sannað að í raun ætti frekar að binda í stjórnarskrá að Íslendingum sé með öllu óheimilt að kaupa upp og veðsetja fiskinn í sjónum, vatnið og jarðvarmann okkar. Að maður tali ekki um tryggingafélög, banka, tuskubúðir og kjötfarsverksmiðjur. Enginn útlendingur, ekki einu sinni Bernie Madoff eða Ponzi gamli, gætu mögulega farið verr með þetta en meðal nýríkur Íslendingur. Ekki sjéns.
Áður en fólk fríkar út í útlendingahræðslunni ætti það ef til vill að líta sér nær fyrst og pæla aðeins í hversu vandaðir landar vorir eru þegar þeir komast í fé og auðlindir. Útlendingarnir eru ekki rassgat verri en við enda er allt fólk í grunninn illt og til alls líklegt en einhvern veginn virðast nú útlendingar almennt fá betra uppeldi en Íslendingar og eru því mun líklegri til þess að hegða sér eins og siðað fólk. Þótt þeir hafi fæðst gráðugir og vondir. Eins og við.
| 10:21 |