»  off record  »  Samtal mitt við nasista
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Samtal mitt við nasista
Föstudagur, 18. mars 2011

Skrapp um daginn í Hveragerði að fá mér ís. Rakst þar á rasista og átti við hann stutt spjall. Jósafat Ari Jónsson er í saumaklúbbnum Arbeit macht Frei/Combat 88 en talan vísar ekki í Heil Hitler heldur samanalgða greindarvísitölu klúbbfélaga.

Jósafat hefur tjáð sig um innflytjendamál á Íslandi í fjölmiðlum undanfarið og þótt helst til fordómafullur og eiginlega bara rasískur. Hann ræddi við Badabing! um stefnu saumaklúbbsins sem er hálfgert leynifélag Suðurnesjamanna og Hvergerðinga.


Hvað gerið þið í þessum samtökum?
Það er leyndó en þetta eru mjög pólitísk samtök en við erum ekkert að skiptast mikið á skoðunum vegna þess að við erum mjög sammála um að hrunið sé gyðingum að kenna og að ESB sé klíka svertingja og múslima sem ætla að leggja undir sig Evrópu. Við tölum mikið um fatatísku og þá helst camouflage-föt sem við erum mjög mikið fyrir. Við reykjum líka soldið af grasi og skiptumst á camouflage-fötum. Ég er tildæmis í camouflage-g streng af konunni minni í dag og mágkona mín sem er líka barnsmóðir mín er í felulita hlýrabolnum mínum. Hann var samt einu sinni hvítur en er orðinn mjög töff eftir alla Heinz bökuðubaunasósublettina. Stundum komum við saman á morganan eftir góðan reyk og hringjum í símatímann á Útvarpi Sögu. Okkur þætti mjög gaman að fá að vera með þátt á Sögu og kannski getum við fengið slottið hans þarna meindýraeyðis þegar hann hættir. Það væri mjö töff afþví að við erum eiginlega líka meindýraeyðar. Bara rotturnar sem við viljum drepa eru ekki með skott. Fattaru?Við erum sjö í þessum klúbbi en ég má ekki segja hvað við erum mörg.

Þú hefur verið kallaður rasisti í fjölmiðlum. Ert þú rasisti?
Nei ég hef aldrei verið með svoleiðis hárgreiðslu en ég tala oft um mig sem þjóðernissinna, sérstaklega á AA-fundum í Árbæjarkirkju þegar ég tek mér pásu frá jónunum. Ég hata ekki aðra kynþætti en mér finnst að þeir geti bara verið heima hjá sér í 101-Reykjavík. Við erum bara að passa upp á okkar, þágufallssýkina og matarmenninguna með pizzunum og hamborgurunum. Og mér finnst ekki fair að dæma mig fyrir að segja að Hitler hafi gert margt gott. Hann var mjög flínkur kall og hafði mikil áhrif á listasöguna með málverkum sínum af hundum með þverslaufur. Svo lifa margar frábærar pasta-uppskriftir hans enn í dag. Hann fékk margar góðar hugmyndir hann Adolf. Og auðvitað Trabantinn sem hann hannaði. Góðir bílar.

Hvað telst að vera Íslendingur?
Við erum Aríar og í mínum huga er Íslendingur svona menn eins og Jón Valur Jensson og fjármálaséníið Guðmundur Franklín. Svona menn sem vita að við erum sjálfum okkur nóg og þurfum ekkert á umheiminum að halda. Sannur Íslendingur veit að útlendingar eru vondir og hættulegir. Áfram Ísland! Ekkert Icesave. Ekkert ESB! Íslendingar drekka líka bara Kók sem er gert úr íslenska vatninu sem er það tærasta í heimi.



| 14:01 |
komment

Uppháttshlátur. Og ég ætla að drífa mig úr camouflage dressinu mínu, og í náttbuxur og bol (pínu hrædd við svona STÓRgengi). Kv. Suðurnesjabúi

Nr. 1 | Erna Ólafsdóttir | 18.03.2011 | 15:39:57 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff