Þriðjudagur, 19. apríl 2011
Scream 4 er ekkert frábær mynd en mér fannst hún samt æði vegna þess að „slasher“ myndir eru mitt líf og yndi. Hef hugsað um voðalega fátt annað en hressar myndir um dráp á foxí barnfóstrum síðustu daga og alltaf þegar maður fer að pæla í búrhnífamorðingjum þá endar maður fyrr eða síðar í sturtu með Janet Leigh.
Eins og allir sem ekki eru tótal morons vita þá slátraði hann Norman Bates henni Janet í sturtunni á mótelinu sem kennt var við fjölskyldu hans í einni geggjuðustu senu kvikmyndasögunnar. (Hnífurinn snertir Janet aldrei, takið eftir því).
Psycho, sem Hitchcock gerði árið 1960, með sjónvarpskrúinu sínu, byggði á samnefndri skáldsögu eftir Robert Bloch. Bókin er merkilegt nokk jafn léleg og myndin er góð. (Já. Þetta þekkist. The Godfather eftir Mario Puzo er til dæmis drasl).
Hvað um það. Allir vita hvernig sturtuatriðið er í myndinni.
Svona er senan í bókinni:
Mary started to scream, and then the curtains parted further and a hand appeared, holding a butcher´s knife. It was the knife that, a moment later, cut of her scream.
And her head.
Svo mörg voru þau orð. Og engar fiðlur.
| 22:20 |