»  off record  »  Apartheid!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Apartheid!
Laugardagur, 09. apríl 2011

Heyrði frábæra pælingu í gær sem er eiginlega eina svarið við þeirri klemmu sem ringluð hjörðin er komin í eftir að meint sameiningartákn hennar gekk af einurð og festu í að klúfa hana rækilega í tvær fylkingar. Heiftin og djöfulgangurin í liðinu er slíkur að ljóst má vera að Nei-fólk og Já-fólk getur ekki búið áfram í sama landi, hvernig sem fer í kvöld.

Eina vitið er því einfaldlega að skipta landinu í tvennt. Ísland, eins og við þekkjum það, heyrir þá sögunni til og við höfum hér Já-land og Nei-land. Í Nei-landi fá þegnarnir Davíð sinn sem forsætisráðherra og Ólaf Ragnar sem forseta. Þar lesa allir Moggann, hlusta á Útvarp Sögu og una líklega glaðir við sitt enda hefur löngum verið talið að sælir séu einfaldir.

Verra er að átta sig á hvernig staðan og stemningin verður í JÁ-landi en ætli maður taki ekki sjénsinn og reyni að vera þeim megin þegar múrinn verður reistur.


| 14:10 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff