»  off record  »  Bloggaði frá sér kjéllinguna
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Bloggaði frá sér kjéllinguna
Þriðjudagur, 12. apríl 2011

Sturluð Icesave-umræðan fór með margan vaskan bloggarann af andlegu hjörunum og nú heyrir maður víða sögur af NEI-bloggurum sem hafa ekki litið af lyklaborðinu síðustu mánuði nema rétt til þess að slá á þráðinn til Útvarps Sögu.

Afleiðingarnar eru misalvarlegar fyrir þá en einhverjir þeirra munu víst hafa áttað sig á því á sunnudagsmorgni að þeir höfðu ekki aðeins bloggað frá sér allt vit heldur líka kjellínguna, köttinn og einhvern reyting af börnum.

Göfugir menn og klárlega bestu synir Íslands sem hika ekki við að fórna eiginkonum sínum og einhverju veraldlegu glingri í baráttunni fyrir sjálfstæði gjaldþrota þjóðar. Gott líka að vita til þess að einhverjar konur hafi grætt nýtt og betra líf á þessu argaþrasi.

Bloggið er hættulegt vopn sem þráhyggjusjúklingar ættu að fara varlega með.


| 21:20 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff