»  off record  »  Góður biti í hundskjaft
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Góður biti í hundskjaft
Föstudagur, 01. apríl 2011

Ég var að fá þau válegu tíðindi að einn af mínum skárri kunningjum, hin vel þokkaði Kastljósskappi, Helgi Seljan sé að fara í framboð fyrir Framsóknarflokkinn af öllum flokkum. Ljótt er ef satt er og ekki benti nú stuttur stjórnmálaferill Helga á æskuárunum til þess að hann myndi síðar eiga samleið með Framsóknarflokknum.

Hinn mjúkmáli og ábúðarmikli formaður Framsóknarflokksins er hins vegar sagður hafa náð að tala Helga til liðs við sig en framsóknarmönnum hafði áður mistekist að fá Egil Helgason, aðra sjónvarpsstjörnu, í framboð. Ég sé nú ekki fyrir mér að yfirboðarar Helga í Efstaleitinu, leyfi drengnum að halda djobbinu ætli hann sér að klifra til pólitískra metorða á vegum Framsóknarflokksins.

Sé þetta tilfellið má þó ljóst vera að um ákveðna stefnubreytingu hjá framsókn er að ræða vegna þess að flokkurinn hefur hingað til ekki stundað það að eyðileggja ungt fólk þar sem óskemmd ungmenni hafa ekki áður gengið af fúsum og frjálsum vilja í flokkinn.

(Gamalt aprílgabb af Badabing frá 1. apríl 2009. Svei mér þá ef þetta væri ekki bara fyndnara í dag).


| 1:15 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff