Sunnudagur, 10. apríl 2011
Jæja apaheilarnir mínir! Skortur á sögulegri þekkingu er banvænn og þess vegna er rétt að við kíkjum aðeins í lítið kver sem Krummi vinur minn gaf mér fyrir nokkrum árum. Frændi hans rekur fornbókaverslun þannig að hann færir mér stundum visku úr fortíðinni. Þetta litla, rauða kver heitir Skattaklyfjarnar - Hvernig getur alþýðan velt þeim af sér? og er gefið út af Kommúnistaflokki Íslands árið 1931. Ekki seinna vænna fyrir ykkur að stúdera þetta þar sem Styrmir Gunnarsson var að ganga í flokkinn.
Okkur ber niður á blaðsíðum 13-14 af 16 síðum alls:
Kommúnistaflokkurinn berst gegn öllum tollum á nauðsynjavörum almennings, fyrir því að allar skattabyrðarnar verði lagðar á auðmennina.
Aðal mótbáran gegn þessari stefnu er, að auðmannastéttin á Íslandi hafi ekki nægilegar tekjur til að standa straum af öllum útgjöldum ríkissjóðs. – Þetta er í raun og veru gjaldþrotayfirlýsing auðvaldsskipulagsins. – Ef núverandi þjóðskipulag hefir engin önnur ráð til að standast kostnaðinn af ríkisvaldi sínu, en að láta þá bera hann, sem hafa hvergi nærri nóg til nauðsynlegasta fæðis og klæða , þá á það engan tilverurétt frá sjónarmiði alls fjöldans, sem það ekki getur séð fyrir lífsviðurværi. Hver getur ætlast til þess, að verkalýðurinn haldi áfram að gjalda svitadropa sína til þeirrar stofnunar, sem ekki getur séð honum sjálfum farborða?
Gætum nú að, hvernig þessu er háttað. Rétt er það, að ef allir óbeinir skattar yrðu afnumdir og öllum byrðunum velt yfir á yfirráðastéttina, þá yrðu íslenzkir auðmenn að verða af alldrjúgum hluta af arðránstekjum sínum. Og þessum hluta sleppa þeir ekki við alþýðu, nema hún sýni þeim í tvo heimana, nema þeir þurfi að kaupa á sig stundargrið, til þess að fá að halda völdunum og arðræna alþýðuna áfram. En ef íslensk alþýða fylkir sér um kommúnistaflokkinn, þá sýnir hún auðdrottnunum í tvo heimana. Með því einu móti getur hún létt af sér skattabyrðunum.
Æ nei! Þið viljið það ekki. Þið voruð að enda við að lýsa yfir að þið viljið aftur samstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Og Kommarnir (Ömmi og fornaldarbarnið úr Dölunum) eru í liði með Davíð, Styrmi og Hannesi. Og hvað er Steingrímur J.að pæla?
Bummer man!
| 23:41 |