»  off record  »  Svaraðu Tóti - ertu með eða á móti?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Svaraðu Tóti - ertu með eða á móti?
Föstudagur, 08. apríl 2011

Mér var og er lífsins ómögulegt að læra muninn á hægri og vinstri og þess vegna beygi ég ýmist „upp“ eða „niður“ þegar ég er að keyra og þarf að heilsa út í loftið (með hægri) ef mér er sagt að fara til hægri eða vinstri til þess að átta mig á hvert skal halda.

Þegar ég var í Háskólanum háði þetta mér þannig að ég gat ekki með nokkru móti munað hvort íhaldsbörnin væru í Vöku eða Röskvu og þess vegna þorði ég aldrei að kjósa í lummulegri stúdentapólitíkinni. Ég hefði nefnilega alveg óvart getað kosið hægri krakkana og ekki vill maður nú hafa slíkt axarskaft á samviskunni.

Kosningin á morgun snýst víst ekki um hægri og vinstri þótt margir virðist halda það. Maður skyldi því ætla að ég ætti að geta kosið nokkuð öruggur en nú er ég orðinn alveg jafn ringlaður og þegar ég var þunglyndur og drykkfelldur bókmenntafræðinemi í HÍ og veit ekki hvað snýr upp né niður. Nei er jákvætt og já er neikvætt. Nei þýðir því í raun já og já nei.

Það er eins gott að við kjósum í apríl en ekki um miðjan ágúst. Þetta verður að fást á hreint fyrir verslunarmannahelgina annars getur nei verið fullgilt svar og þýtt í raun já. Nauðgun verður ekki nauðgun lengur og allt fer í rugl.

Hvað sjálfan mig varðar held ég að mér sé hollast að nota AMX fyrir áttavita og stúdera aðeins hverf fuglarnir þar stefna og fara svo í þveröfuga átt. Ætli það sé til hægri eða vinstri?


| 11:23 |
komment

AMX fuglarnir fljúga nú almennt ekki til hægri eða vinstri heldur beint á næstu rúðu. Þeir vakna síðan úr rotinu og endurtaka leikinn. Þetta væri fyndið ef þetta væri ekki svona sorglegt.

Nr. 1 | Óli Gneisti | 8.04.2011 | 12:04:38 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff