»  off record  »  Angry Birds
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Angry Birds
Þriðjudagur, 26. júlí 2011

Uppgangur trylltra smáfugla hefur verið ótrúlegur undanfarið og óneitanlega hefur verið gaman að fylgjast með fjaðrafokinu. Tölvuspilið Angry Birds, eins og það er nú kjánalegt og leiðinlegt, nýtur rosalegra vinsælda og nú hafa AMX-smáfuglarnir loksins slegið í gegn. Fyrir einmitt það að vera kjánalegir og leiðinlegir.

Ræpan sem lekur frá smáfuglunum er nú sjaldnast svaraverð en maður hefur samt ekki getað stillt sig um að kíkja í Arnarhreiðrið þeirra á AMX reglulega til þess eins að skemmta sér við að lesa geggjaðar samsæriskenningarnar sem koma frá að því er mér skilst fínum broddborgurum sem ganga lausir en ekki sturluðum einstaklingum sem hafa náð að losa krumlurnar úr spennitreyju og stelast í lyklaborð.

Sjálfsagt er það rétt að þessir gæjar séu í raun stórhættulegir en þeir hafa nú bara samt einhvern veginn virkað svo súrrandi vitlausir að maður hélt að það væri óhætt að hlæja að þessu. Þetta er líka bara svona bergmálið af veikustu tuðurunum sem hringja í Útvarp Sögu.

Þessi Ingjaldsfífl internetsins sem sitja föst í hlekkjum hugarfars síns hafa hingað til ekki uppskorið mikla athygli þótt hinir og þessir hafi af og til séð ástæðu til þess að kasta einum og einum skemmdum tómmati í smettin á þeim. En nú hefur sturlað smáfuglagerið aldeilis fengið uppreisn æru. Allir eru að tala um þá og alvöru samfélagsrýnar og fólk sem kann að skrifa keppist nú við að hamfletta illfyglin.

Eftir endalaust gjamm og gogg út í loftið hitti fiðurféð á snöggan blett í þjóðarsálinni og er nú álíka kokhraust og borubratt og kjúklingur á færibandi dauðans á leið í djúpsteikingarpottinn á KFC. Eiginlega finnst manni þessu liði gert of hátt undir höfði með öllum látunum en umræðan er nú svosem ekki á miklu hærra plani svona yfirleitt. (Mundi stjórnlagaráð ekki örugglega eftir því að binda afnám lýðræðis og málfrelsis í nýja stjórnarskrá?)

Angry Birds hefur í það minnsta kennt manni að trylltir fuglar geta verið stórhættulegir þannig að maður verður að hætta að hlæja að AMX og líta á þetta sem raunverulega ógn á meðan maður heldur áfram að stýra fuglum sem sprengja svín í tölvuleiknum.


| 20:38 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff