»  off record  »  Þegar ég féll á alkaprófinu
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Þegar ég féll á alkaprófinu
Laugardagur, 30. júlí 2011

Einhvern tíma snemma á þessari öld ákvað ég að þagga endanlega niður í tuðandi liði sem þreyttist ekki á því að halda því fram að ég væri alkóhólisti. Dreif mig í viðtal á Teigi og þóttist nokkuð viss um að ég myndi rúlla öllum prófum þar upp og fá uppáskrifað að ég væri sko ekki alki.

Þetta gekk allt vonum framar og ég notaði alla sikkópatísku lygatöfrana sem við alkarnir getum beitt af sömu færni og Obi-Wan geislasverðinu. Ráðgjafinn sá samt við mér og veiddi mig í gildru með lúmskri "trick question", eins og það heitir í útlandinu.

"Hvaða merkingu hefur einn bjór fyrir þér?"

"Ha? Það er ekkert til sem heitir einn bjór. Þetta er merkingarleysa."

Viku síðar var ég kominn í meðferð.

Þetta var löngu áður en ég kynntist þriggja bjóra kenningunni sem er mjög góð.


| 18:13 |
komment

Þriggja bjóra kenningin? Semsagt sú að einn bjór hafi þá merkingu að vera þriðjungur úr skammti?

Annars held ég að SÁÁ sé mikið rugludallakompaní: http://www.norn.is/sapuopera/2007/06/vintri_handa_allmattugum.html

Nr. 1 | Eva | 31.07.2011 | 14:37:48 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff