»  off record  »  Fantabragđ Frjálsrar verslunar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Fantabragđ Frjálsrar verslunar
Miðvikudagur, 27. júlí 2011

Eins og ég er nú fylgjandi gegnsći á öllum sviđum samfélagsins og ţá ekki síst ţví ađ álagningaskrár skuli liggja fyrir hunda og manna fótum síđsumars ár hvert ţá kann ég Frjálsri verslun litlar ţakkir fyrir ađ birta tekjur mínar á síđasta ári í Tekjublađi sínu. Ţar sem í raun ekkert hefur breyst hér eftir hrun er manngildiđ enn metiđ í milljónum og milljörđum króna og ţađ er mér ekki til framdráttar ađ veriđ sé ađ flagga tekjum mínum á ári sem ég var bćđi atvinnulaus og skrifađi bók sem seldist ekki vel.

Ég er nú svo ópraktískur og kćrulaus ađ ég hef ekki hugmynd um hverjar mánađartekjur mínar voru í fyrra en miđađ viđ lifistandardinn geta ţćr ekki hafa veriđ neitt spes. Ég er samt dulítiđ forvitinn um hverjar tekjur mínar og fleira fjölmiđlafólks voru ţannig ađ ég verđ sennilega ađ gera mér ferđ út á bensínstöđ og fletta mér upp í ţessu blađi og horfast í augu viđ smán mína á prenti.

Mestar áhyggjur hef ég af ţví ađ ég muni nú aldrei ná mér í konu ţegar FV er búinn ađ gefa ţađ út ađ verđmiđinn á mér sé lćgri en á međal alţingismanni. Ţar sem ekkert ber á mér opinberlega og ég skipti engu máli í stóra samhenginu get ég ekki ímyndađ mér annađ en ţetta óţverrabragđ FV sé síđbúin hefnd fyrir ţađ ađ áriđ 2007 ritstýrđum viđ Reynir Traustason Tekjublađi Mannlífs og réđumst ţannig á skítugum skónum inn í gullnámu Frjálsrar verslunar.

Vođalega ţurfa fátćkir menn ađ gjalda lengi fyrir syndir sínar.


| 16:29 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiđlar

Bloggar

shit and stuff