Sunnudagur, 31. júlí 2011
Muniđi hvađ bloggiđ var sniđugt, skemmtilegt, hipp&kúl í árdaga áđur en kverúlantar og besserwisserar hertóku ţađ međ heimskulegri samfélagsrýni sinni og bjánalegum lausnum á öllum vandrćđum ţjóđarinnar? Allt frá verđtryggingu til Icesave, ESB og málskotsrétti forsetans.
Ţetta var allt annađ líf áđur en Mogginn opnađi fyrir flóđgátt fávitanna međ blogginu sínu. Áđur en gullöld heimskingjanna rann upp á netinu var bloggiđ einfaldlega persónulegt raus fólks sem hafđi eitthvađ á milli eyrnanna og hafđi vald á íslensku máli. Kunni ađ hugsa og skrifa. Og bloggađi eitthvađ á ţessa leiđ:
Vaknađi laust fyrir hádegi á ţessum fagra sunnudegi viđ suđiđ í geitungi sem hafđi tyllt sér á vanga minn. Leiđ eins og James Bond ţegar hann vaknađi međ tarantúluna í rekkjuvođunum. Ţorđi ekki ađ hreyfa mig og lá frosinn ţar til hćttan var liđin hjá. Spratt ţá framúr, greip leslampann og sálgađi kvikindinu međ offorsi og ofbeldi sem hefđi dugađ til ţess ađ koma ţremur fullorđnum og fullhraustum karlmönnum í hel.
Ristađi mér svo tvćr franskbrauđssneiđar og lagađi rótsterkt kaffi. Eftir árbítinn taldi ég síđustu krónurnar mínar upp úr klinkskálinni, náđi ađ skrapa saman 960 krónum og gekk í rólegheitum út í sjoppu til ađ kaupa sígarettur. Hlustađi á Best of Michael Jackson í iPodinum á međan og virti fyrir mér fegurđ lífsins. (Eđa hefđi gert ţađ ef ég hefđi ekki veriđ á gangi í Kópavogi).
Og nú, kćru vinir og lesendur, er ég kominn aftur heim. Búinn ađ drekka hálfan lítra af bleksvörtu kaffi og reykja tvćr sígarettur. Er ţví kominn í góđan ham fyrir sunnudagsverkin. Ćtla ađ byrja á ţví ađ ţrífa bađkariđ og klósettiđ. Skúra gólfiđ í bunkernum, kveikja á nokkrum vanillu ilmkertum og snúa mér svo ađ eldamennskunni. Og auđvitađ hlusta ég á Útvarp Sögu á međan ég klára ţetta allt.
Í kvöldmat ćtla ég ađ vera međ steiktar kjúklingabringur úr Bónus sem komnar eru tvo daga fram yfir síđasta söludag. Sker ţćr í bita, steiki á pönnu og sulla svo einhverju gumsi úr pakka frá Knorr saman viđ.
Ef amma getur svo lánađ mér fyrir bjórkippu ćtti ţetta ađ verđa frábćrt kvöld. Ć, fokk! Sunnudagur og ÁTVR lokađ. Djöfull er ţetta líf alltaf glatađ.
Ókei bć!
| 18:05 |