Skepnurnar Dr. House og Tóti
Sunnudagur, 31. júlí 2011
Þessi, legend-... wait for it... and I hope you're not lactose intolerant because the second half of that word is DAIRY, færsla er tileinkuð Unni H. sem á einni kvöldstund kenndi mér allt sem ég veit um mál, stíl og textabyggingu.
Tótinn hefur meðal annars eytt fríinu sínu í að horfa á gamla þætti um House M.D. Tóti byrjaði um daginn á seríu sem hófst á því að House var á geðspítala og reyndi að vinna bug á verkjalyfjafíkn og sjálfum sér. Tóta hefur alltaf gengið vel að samsama sig House enda eru þeir mjög svo líkar persónur. Fíklar og skepnur eða skepnur og fíklar. Þetta hangir yfirleitt saman eins og svart kaffi og sígarettur. Eins og Tótinn veit svo vel.
Auðvitað er samt fíknin ekki stórvandamál. Það vita þeir félagar Tótinn og House. Það sem er að éta okkur upp að innan er sú einfalda staðreynd að við erum góðir gæjar með fallegt hjartalag sem fórnum okkur fyrir fjöldann með því að þykjast vera kaldlyndar skepnur.
Það er ekkert auðvelt að fara í gegnum lífið og einblína á veikustu blettina í fari hvers og eins og láta svo til skarar skríða með hárbeittum orðspjótum þegar snöggi bletturinn er fundinn. En því miður verða einhverjir góðir menn að fórna sálarheill sinni og halda pakkinu sem heldur að það sé eitthvað niðri. Við getum bara ekki liðið að hæfileikasnautt hyski sé stöðugt að gera sig gildandi á sviðum sem koma því ekki við. Og ekki má í þessu PC samfélagi okkar berja fólk til óbóta eða taka af lífi fyrir að vera fífl. Þannig að þá stendur ekkert eftir nema eineltið og andlegar ofsóknir í krafti orðkynngi og fundvísi á veikleika.
Ég meina komon! Varð ekki offita íslenskra barna vandamál á heimsvísu eftir að Olweusar-áætlunin var sett í gang?
Mér finnst ekkert gott að vera eitraður og leiðinlegur við fólk og ég næ sjaldan góðum nætursvefni en það verður einhver að taka þetta á sig og þá hlýtur að vera best að það séu góðir menn með stór hjörtu og sexappíl sem taka hyskið niður frekar en rakin illmenni og handrukkarar.
Þess vegna gerum við House það sem við gerum og segjum það sem við segjum. Við fólk sem virðist á yfirborðinu vera í lagi en á helst að halda sig heima og halda kjafti. Þið megið samt alveg dæma okkur og hata. Við tökum bara Vicodine og Bacardi við þeim aukaverkunum.
Fíknin er gjald fórnfýsinnar for the greater good.
| 22:59 |