Fimmtudagur, 18. ágúst 2011
Eitrað framsóknarblóð rennur um æðar mínar og nafn mitt er löðrandi í slíku blóði, tærara en blóðinu sem rennur um æðar núverandi formanns og flestra þeirra snillinga sem sitja á þingi fyrir flokkinn. Veit í það minnsta ekki til þess að engir nema ég og Gummi Steingríms getum státað af því að eiga afa (eða jafnvel pabba) sem hafa unnið náið með Hriflu-Jónasi, Eysteini, Óla Jó og Hermanni (æ já, hann er víst afi Gumma).
Ég hef nú samt fyrirlitið þennan flokk síðustu 20 árin eða svo. Aðallega vegna þess að ég veit fyrir hvað hann stóð í árdaga og nú virðast síðustu eftirlegukindurnar (no pun) hafa vaknað upp við vondan draum og sögðu sig úr flokknum í dag.
Mér hefur oft runnið mengað blóðið til skyldunnar og haft uppi áform um að bjarga þessum flokki. Nenni því ekki lengur. Jafnvel þótt ég hafi á sínum tíma tekið þátt í því að stofna Boxfélag Framsóknarmanna með Mikka Torfa og fleira góðu fólki. Ég sótti samt um inngöngu í Framsóknarflokkinn rafrænt fyrir rúmu ári til þess að leggja grunn að nauðsynlegri hallarbyltingu.
Nú tel ég víst að enginn framámaður innan framsóknar í dag hafi lesið Sókn og sigra, sögu Framsóknarflokksins í þremur bindum eftir afa, en samt vita þeir greinilega sínu viti og umsókn mín hefur ekki enn verið samþykkt. Mér er alveg sama og dreg hana hér með til baka. Þessu verður ekki bjargað úr því sem komið er.
Rétt er að hafa í huga að ég er samt meira ekta og með ungmennafélagsandann betur á hreinu en þeir sem hafa hlammað sér í efstu lög í þessum flokki. Afi auðgaðist til dæmis ekkert af áratuga óeigingjarnri vinnu sinni fyrir flokkinn. Hann lækkaði meira að segja laun sín sem ritstjóri Tímans þegar hann fór á þing og þáði laun fyrir það. Engum framsóknarmanni nú til dags dytti önnur eins firra í hug.
Hélt samt að það væri bara formsatriði fyrir mig að skrá mig í flokkinn. Ekki síst vegna þess að ég var ekki orðinn eins árs þegar Félag ungra framsóknarmanna sendi mér 10 jólahappadrættismiða og gíróseðil með, þannig að ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að ég hafi fæðst inn í flokkinn. Eðlilega þar sem ég kom í heiminn daginn sem Viðreisnarstjórnin féll og X-B hefur nánast verið í stjórn allt mitt líf. (Ekki furða að ég sé þunglyndur alki með death wish).
Þar fyrir utan hef ég fengið að gjalda fyrir nafnið, blóðið og genin allt mitt líf. Tilvonandi tengdaforeldrar hafa til dæmis fitjað upp á trýnið í gegnum tíðina og sagt dætrum sínum að litningar mínir séu ekki velkomnir í þeirra raðir og svo framvegis.
En hér stend ég og get ekki annað en ég hef ekki áhuga á að ganga í klúbb sem vill mig ekki. Þar með eru allir sáttir. Geri ég ráð fyrir.
| 19:34 |