Þegar DV hringir...
Mánudagur, 22. ágúst 2011
Ég var einu sinni fréttastjóri á DV og get því vottað það að þegar DV hringir í fólk er farsælast að svara heiðarlega og forðast í lengstu lög að flækja sig í lygi. Lygarar eru nefnilega ekki teknir neinum vettlingatökum á þeim bænum og það er svo auðvelt að hanka fólk og velta því síðan upp úr lygjatjöru sinni og stolnum fjöðrum á síðum blaðsins.
Þetta á auðvitað ekkert bara við um samskipti við fjölmiðla, heldur öll samskipti í lífinu. Lygin bítur fólk alltaf í rassgatið fyrr eða síðar.
Þörfin fyrir svokallaða PR-menn, sem hafa þann starfa að hjálpa fólki að sleppa með skrekkinn eða sleppa bara alveg, hefur vaxið jafnt og þétt í seinni tíð í takt við hnignandi siðferði mannskepnunnar. Í sjálfu sér er stórmerkilegt að hægt sé að búa til heilan iðnað og atvinnurekstur i kringum heilbrigða skynsemi. Eða þannig. Auðvitað er ekkert heilbrigt við að reyna að láta rófuna dilla hundinum og þess vegna verður þetta almannatengslabrölt alltaf svolítið hallærislegt í hugum þeirra sem nota fimm heilasellur eða fleiri í einu. Vegna þess að fólk þarf ekki PR-menn heldur „common sense“.
Í raun er bara um tvennt að ræða þegar fjölmiðill hefur samband, annað hvort neitar maður að tjá sig. Segir bara „no comment“ eða svarar spurningum satt og rétt. Og málið er dautt. Málið fær hins vegar risavængi og tekur fyrst flugið þegar reynt er að ljúga sig út úr því og segldúkum og kantsteinum fer að rigna.
Fyrir nokkrum misserum hélt PR-maður fyrirlestur undir yfirskriftinni „Þegar DV hringir...“ Kannski full vel í lagt að halda heilan fyrirlestur um eitthvað sem rúmast í tveimur setningum. En í því sambandi er gaman að rifja upp hvað þekktur bissnissmaður sagði einu sinni við mig nokkrum dögum eftir að Jakob Bjarnar, félagi minn, hafði brennt hann illa á síðum DV fyrir nokkrum árum.
„Næst þegar DV hringir ætla ég ekki einu sinni að anda í símann. Leggja tólið varlega á og hlaupa út úr herberginu.“
Þessi maður er sjóaður í bransanum og í raun fáránlega flinkur PR-maður enda lumaði hann þarna á PR-ráði sem stjóra Hörpu hlýtur í dag að þykja þyngdar tónleikahússins virði í gulli: LEGGJA TÓLIÐ Á!
| 11:19 |