Þriðjudagur, 16. ágúst 2011
Þegar þessi réttur var í þróun var alveg frábær, lítil pastabúð á Skólavörðustíg þar sem hægt var að kaupa geðveikt góðan túnfisk í olíu í niðursuðudósum. Búðin er löngu horfin en rétturinn stendur enn fyrir sínu en ég reyni þó í lengstu lög að forðast túnfisk í íslenskum dósum. Hann er svo óspennandi.
Á útrásartímanum var hægt að fá þrusufínan túnfisk í olíu í glerkrukkum í Nóatúni. Hef ekki rekist á það gúmmelaði lengi og læt bara þann niðursoðna túnfisk sem er í hillum Bónus hverju sinni duga.
Pasta er grunnurinn í þessum rétti eins og svo mörgu öðru sem ég elda til þess að halda mér á lífi. Að sjálfsögðu tek ég nokkra áhættu með þessu pastaáti en Mikael Torfason hefur viðrað í mín eyru þá sannfærandi kenningu að karlmenn byrjuðu að vera eins í laginu og konurnar sínar þegar pastaæðið skall á á Íslandi. Eins gott að ég á ekki konu!
Þegar pasta er soðið er mjög mikilvægt að sjóða vatnið fyrst, blanda það ólívuolíu og salti, og ekki setja Barilla-hnyklana ofan í pottinn fyrr en suðan er komin upp. Pastað á að malla í 7 mínútur og á meðan snýr maður sér að sósunni.
Við byrjum á því að skera Piparost í bita (svo hann bráðni hraðar) og hrærum hann saman við mjólk eða rjóma við sæmilegan hita. Sósan er auðvitað betri með rjóma en fátæklingum og fitubollum er samt ráðlagt að nota bara nýmjólk.
Þegar sósan er klár, ætti pastað líka að vera tilbúið og þá er pastanu mokað á disk, túnfisknum er svo dreift í miklu magni yfir og allt um kring og að lokum er piparostasósunni hellt yfir. Og þar með er tilbúinn alveg hreint magnaður og saðsamur réttur.
Tilbrigði: Þegar fólk er orðið leitt á túnfisknum má hæglega skipta honum út fyrir bacon og þá er kominn annar ekki síður skemmtilegur réttur.
Verði ykkur að góðu!
| 11:55 |