»  off record  »  Eldað fyrir einn: Hnakkapasta
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Eldað fyrir einn: Hnakkapasta
Sunnudagur, 14. ágúst 2011

Geðlæknirinn minn er búinn að banna mér að stofna til illdeilna og vera leiðinlegur á Netinu. Segir að það eitri í mér blóðið eða eitthvað álíka gáfulegt. Þannig að framvegis ætla ég bara að blogga um mat. Öllum finnst matur skemmtilegur og voða gaman að éta þannig að þetta er pottþétt ekkert jarðsprengjusvæði.

Í fyrra tók ég kynlífsbloggrispu við miklar vinsældir en í andrúmi núna er varasamt að lýsa yfir áhuga sínum á smá hopsasa på sengekanten þar sem slíkt getur kallað yfir mann allsherjar fordæmingu. Við höldum okkur því í eldhúsinu og réttum megin við eldavélina eins og draumahúsmóðir Guðna Ágústsonar.

Þar sem ég hef ekki hundsvit á mat, kann lítið fyrir mér í eldamennsku og matreiði oftast fyrir einn (sem er flókið, leiðinlegt og mikil kúnst) þá verður töluverður fengur í blogginu Eldað fyrir einn fyrir einbúa og fólk sem ræður aðeins við einföldustu rétti.

Byrjum á Hnakkapastanu. Einföldum og bragðgóðum rétti sem er svaka gaman að borða. Nafnið gæti auðvitað bent til þess að þetta sé réttur á matseðli Hamborgarafabrikkunnar þar sem hnakkar panta sér borð með viku fyrirvara til þess að borða hamborgara í ferköntuðu brauði. Svo er nú samt ekki. Heldur dregur rétturinn nafn sitt til aðalhráefnisins, nefnilega úrbeinuðum grísahnakka úr Bónus.

Maður byrjar á því að henda 4-6 hnyklum af Barilla tagliatelle pasta í pott. Allt eftir því hversu svangur einbúinn er hverju sinni. Rétt er að gæta þess að nota stóran pott þótt ekki sé þetta mikið magn vegna þess að það verður að fara vel um pastað á meðan það sýður. Síðan sullar maður smá ólífuolíu og salti ofan í pottinn eftir kúnstarinnar reglum. Á meðan beðið er eftir að suðan kemur upp er tilvalið að setja á sig einnota latex-hanska og skera 2 grísahnakka með beittum hníf í mátulega litla bita.

Þegar það sýður upp úr þarf að bregðast skjótt við og þurrka vatnið af eldavélinni með viskustykki. Og gæta þess að brenna sig ekki þegar þurrkað er í kringum helluna. Þegar þessu er lokið á pastað að fá að sjóða í 7 mínútur. Og þá er gott að vera með heita pönnu tilbúna og renna hnakkabitunum á hana, úða Svínakjötskryddi frá Pottagöldrum yfir kjötið og alls ekki að vera neitt að spara kryddið.

Þegar pastað er tilbúið er örstutt í að kjötið sé klárt og þessu er svo slengt á disk og Feta-osti hellt yfir herlegheitin. Hér á heldur ekki að spara neitt og gæta þess að nóg sé bæði af olíunni og ostateningunum. Þeir sem trúa því að það geri eitthvað fyrir þá að éta gras geta svo hæglega haft kál úr poka með þessu.

Verði ykkur að góðu!


| 17:43 |
komment

Þessi réttur mun enda á spjöldum sögunnar?
Það er aðeins eitt sem þú ert ekki meðvitaður um; kokkamennska er list, rétt eins og ritlist, tónlist, myndlist. Því ráðlegg ég þér Tóti minn að halda þér við ritlistina; það er þin listgrein. Láttu svo 1944 eða sætar vinkonur sjá um að halda þér á lífi.

Nr. 1 | Bergljót Davíðsdóttir | 14.08.2011 | 18:43:37 | [+] |

Klárt að þetta matarblogg á eftir að veita 1944 réttum harða samkeppni sem og take-away stöðum. Einmitt það sem vantaði í bloggheima.

Nr. 2 | Einar Guðjónsson | 14.08.2011 | 21:30:26 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff