»  off record  »  Eldað fyrir einn: Hnakki í ofni
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Eldað fyrir einn: Hnakki í ofni
Miðvikudagur, 24. ágúst 2011

Neinei. Hitler er ekki vaknaður til lífsins og byrjaður að hreinsa til í mannkyninu með því að láta reka FM-Hnakka í bræðsluofna. Hér er auðvitað verið að vísa til eins helsta grunnhráefnisins í fátæklegu eldhúsi mínu. Jú, passar. Úrbeinaði grísahnakkinn í Bónus!

Þetta er hálfgerður hátíðarmálsverður einbúans og fátæklingsins. Þeir sem eiga eldfast mót geta endilega notað það undir hnakkana en þar sem eldföst mót eru eitt af því sem konur taka alltaf með sér við skilnað þá hef ég vanið mig á að dúkaleggja ofnskúffuna með álpappír. Um að gera að hafa þrefalt lag vegna þess að þá lekur fitan ekki í gegn og maður losnar við að djóflast á skúffunni með uppþvottaburstanum síðar. Þá er líka svo sniðugt að skóla bara leyfunum á skúffuna að máltíð lokinni og loka svo álpappírsundirlaginu utan um allt klabbið, búa til vænan bolta og henda svo í ruslið. Minni lykt. Minna vesen. Kjörorð einbúans.

Svona riggar maður upp þessari fínerísmáltíð á 40 mínútum, sléttum!

3-4 hnakkar ættu að duga nema fólk hafi ekki fengið að borða í nokkra daga og er verulega svangt. Við erum auðvitað komin með latex-hanskana og þá er fínt að byrja á því að berja hnakkana duglega með kjöthamri (hver vill ekki berja hankka?). Síðan er lúbörðum hnökkunum raðað smekklega í skúffuna/eldfasta mótið og þeir pennslaðir með barbecue-sósu. Síðan er skúffunni/mótinu skutlað í ofninn og hann stilltur á 180. Um leið og því er lokið tekur fátæklingurinn iPhone-inn sinn G4 og stillir timer-inn á 40 mínútur.

Þá má slappa aðeins af. Þeir sem mega neyta áfengis geta til dæmis blandað sér fordrykk. Gin og tónik er upplagt, að sjálfsögðu Gordons vegna þess að þetta er lúxusréttur fátæklinga.

Að hálftíma liðnum er upplagt að skella forsoðnum og skrældum kartöflum í pott og sjóða. Taka svo minnsta skaftpottinn á heimilinu og skella í Toro bernaise sósu. Þið kunnið það. Bræða 75 grömm smjörlíki, bæta við sósuduftinu, 0,5 dl mjólk og 2 dl vatni og hræra saman. Þegar kartöflur og sósa eru klárar ætti iPhone-inn að fara að baula eins og skuttogari á leið í höfn og þegar það gerist eru lungamjúkir hnakkarnir teknir úr ofninum og maturinn er tilbúinn.

Verði ykkur að góðu!


| 10:32 |
komment

Glæsilegt! Er ekki frá því að þarna hafir þú fundið hilluna þína svo um munar. Nú er að bóka fund með Corleone-feðgum og leggja drög að matreiðslubók. Rikka mæ arse.

Þú gætir verið með gestakokka í bókinni.

Nr. 1 | Jakob Bjarnar | 26.08.2011 | 11:32:06 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff