»  off record  »  Eldað fyrir einn: Pylsa dauðans
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Eldað fyrir einn: Pylsa dauðans
Fimmtudagur, 18. ágúst 2011

Ég þekki mann sem borðar Heinz-bakaðar baunir kaldar upp úr dósinni þegar mikið liggur við og Sóma-samlokurnar eru búnar í kælinum á bensínstöðinni. Hann kallar þetta „neyðarfæði“.

Ég gæti ekki étið þennan viðbjóð þótt líf mitt lægi við. Ekkert frekar en ég gæti reykt Salem Lights þótt þær væru síðustu sígaretturnar í heimi.

Mitt neyðarfæði er öllu vandaðara og rauða medisterpylsan frá Kjarnafæði hefur oft reynst mér vel á ögurstundu. Þetta er ódýrt og auðvelt í eldamennsku. Bragðgott og ekki spillir fyrir að það er gott sport að éta unnar kjötvörur.

Pylsan er einfaldlega tekin og skorin niður í mátulega þykkar skífur. Síðan er skemmtilegt að skera skífurnar í sundur í miðu. Ágætt að vera með svona 5-6 skífur í bunka og kljúfa þær þannig. Á meðan pylsubitarnir krauma á pönnunni og fá á sig girnilega svarbrúnt yfirbragð er tilvalið að spæla þrjú egg, báðum megin, á hinni hellunni (já, ég er bara með tvær!)

Svona einfalt einbúafæði þarfnast ekki frekara meðlætis og kartöflumús er til dæmis alveg af og frá þannig að rétturinn er klár á nokkrum mínútum og svíkur ekki.

Verði ykkur að góðu!


| 15:20 |
komment

Þetta er eðalfæði. Til hátíðarbrigða má brúka með venjulegt samlokubrauð, tómatssósu og sinnep. Eðalfæði á allra vörum.

Nr. 1 | kolbeinn | 18.08.2011 | 15:41:38 | [+] |

minnir mann óneitanlega á:
http://www.youtube.com/watch?v=vl6azn-DzeE&feature=player_embedded#!

Nr. 2 | óskar | 18.08.2011 | 16:39:39 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff