Mánudagur, 15. ágúst 2011
Allir sem hafa einhvern tíma verið barn vita að lifur er viðbjóður í sinni tærustu mynd. Hún er samt alveg geðveikt ódýr og sjúkt holl, járnrík og hressandi fyrir líkamlega aumingja eins og mig sem borða 2-3 heitar máltíðir á viku.
Og sem betur fer þarf lifur ekki að vera svo vond ef maður eldar hana eins og fyrrverandi tengdamóðir mín (númer eitt) og núverandi leigusali kenndi mér að gera.
Eins og venjulega, þegar maður meðhöndlar blóðugt og hrátt kjötmeti, er upplagt að byrja á að smeygja á sig einnota latex-hönskum áður en lifrin er handfjötluð. Síðan er hún skorin niður í þægilega munnbita og velt upp úr hveiti.
Á meðan lifrarbitarnir liggja í hveitinu eru bacon-strimlar (svokölluð grísasíða) skornir í nokkra hluta. Fleskið er svo þurrsteikt á pönnu og þegar lýsið er farið að leka af þeim er lifrarbitunum skellt á pönnuna og bragðvonda kjötið og það bragðgóða eru steikt saman og bæta hvort annað upp á meðan. Bacon-ið kemur með gott bragð og lifrin stórfenglega hollustu.
Þegar lifrin er orðin fallega brún er ¼ lítra rjóma hellt yfir kjötmetið sem fær að malla aðeins í rjómanum á meðan úr verður bragðgóð sósa. Síðan er þessu bara skóflað á disk og borðað með bestu lyst.
Þar sem börn hata lifur er þessi meinholli, bragðgóði, einfaldi og sérlega skemmtilegi réttur vitaskuld bókstaflega aðeins eldaður fyrir einn. Ein lifur (ca. 149 kr.) og eitt bacon-bréf duga því vel og samanlagt kostar þessi höfðinglega kvöldmáltíð minna en tilbúinn hamborgari úti í bæ.
Verði ykkur að góðu!
| 19:49 |