Föstudagur, 12. ágúst 2011
Ég tók þátt í því að færa jafnréttisbaráttuna 30 ár aftur í tímann í dag (í fyrra færði ég hana víst 20 ár aftur á bak með litlu kveri. 50 ár fyrir mig!) með því að birta litla skemmtifrétt um að tvær skutlur, sem ég hef í miklum hávegum, ætla að bræða slatta af flatskjáum í vetur með þokka sínum og skemmtilegheitum.
Þrátt fyrir að hafa tekið þátt í að skrifa sögu þekktustu mellu landsins í fyrra virðist ég samt ætla að sleppa núna og sturlaður vandlætingarkórinn, sem hefur það lokatakmark að gera lífið svo leiðinlegt að það verður ekki þess virði að lifa því, beinir nú spjótum sínum að stelpunum.
Ellý og Tobba eru konur sem vita hvað þær vilja og hvert þær ætla og fara þangað. Soldið svona eins og Madonna sem er meiri femínisti en marga grunar og hefur nú rutt einhverjar brautir í korsilettinu.
Mér sýnist „góða fólkið“ með heykvíslarnar aðallega vera sturlað yfir því að Ellý segir þær þokkagyðjur ætla að tala um „allt“ sem konur hafa áhuga á og nefnir snyrtivörur, líkamsrækt, kynlíf og eitthvað í þeim dúr.
Og múgurinn urlast. Greinilega svo uppfullur af öfugsnúnum fordómum að það er bara slegið 1,2 og Bingó Lottó að konur hafi ekki áhuga á neinu öðru og að Ellý trúi því virkilega. Ætli vikublað með upptalningu á öllu því sem konur hafa áhuga á þyrfti ekki að vera álíka þykkt og Símaskráin með Þykka á kápunni til þess að ná yfir hluta af áhugamálum kvenna. En endilega brjálumst yfir þessum glæp gegn mannkyni!
Einn vandlætarinn álpaðist meira að segja, einhverra óskiljanlegra hluta vegna, inn á Kaffistofu vefritsins Bleikt.is, sem einmitt er nýbúið að færa jafnréttisbaráttuna langleiðina inn í þrítugustu öldina, og tekur nett æðiskast yfir því að Tobba og Ellý ætli sér að flippa á skjánum í vetur. OMG! Er ekki hægt að bæta við nýju fjölmiðlalögin?
Það sorglegasta við gargið í falska kórnum, sem syngur til bjargar heiminum, er svo auðvitað mann(kven)fyrirlitningin sem gefur tóninn fyrir gaulið. Fólk, sérstaklega konur, eru svo vitlausar að það er okkar hlutverk að vernda þær fyrir sjálfum sér. En hvað eigum við þá að gera við snyrtivöruna gloss sem á að vera á allra vörum til þess að hjálpa veikum börnum?
Ellý og Tobba eru frábærar týpur og það er ekki laust við að ég hafi á einhverjum tímapunktum verið pínu skotinn í þeim báðum en ég er einmitt þekktur fyrir að falla fyrir skoðanalausum bimbóum eins og sagan sýnir svo glögglega (NOT!).
Annars nenni ég ekki að eyða orðum og stílfimi minni í þessa vitleysu en ætla samt að gerast svo grófur að vitna í heimspekinginn Eirík Jónsson sem segir að það sé bull að aðgreina fólk eftir því hvort það sé gott eða illt. Það eina sem skipti máli er hvort fólk er skemmtilegt eða leiðinlegt.
Og þið eruð fokk boring.
(ps. Ó boy! Hvað ég vandaði orðavalið til þess að PC-liðið myndi ekki fara á límingunum. En sumt er meira að segja fallusinum mér ómögulegt)
| 18:48 |