»  off record  »  Góður Gummi! (Steingríms)
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Góður Gummi! (Steingríms)
Mánudagur, 22. ágúst 2011

Ég á í mesta lagi þrjá vini. Og Guðmundur Steingrímsson Hermannssonar er ekki einn af þeim. Þannig að ég er varla að brjóta einhverja hlutleysisreglu blaðamanna með því að lýsa yfir eindregnum stuðningi við ákvörðun hans um að yfirgefa Framsóknarflokkinn. Enda breytir þetta engu um þá stefnu mína að líta jafn mikið niður til allra og ég get enn snúist á sekúndubroti, eins og sporðdreki á bakinu á skjaldböku, og stungið í hel. Vegna þess að mér er sama um allt. Hið eina sanna fullkomna hlutleysi.

Breytir því ekki að með góðum vilja get ég kallað Gumma Steingríms kunningja og það kemur því ekkert við að afi minn vann náið með afa hans og pabba innan Framsóknarflokksins þegar sá flokkur gat með einhverju fræðilegu móti réttlætt tilveru sína. Þekki Gumma samt ekkert út af því enda hef ég aldrei látið að mér hvarfla að rækta framsóknarmennskuna innra mér þótt afi Þórarinn, sem hefur verið ljós lífs míns alla tíð, hafi verið einhver tærasti framsóknarmaður sögunnar. Eðlilega. Þar sem Hriflu-Jónas tók hann 12 ára á löpp og beindi honum inn á ákveðna braut.

Ég þekki nú Gumma bara vegna þess að hann var vinnufélagi minn og yfirmaður á Fréttablaðinu um tíma. Og þetta blogg er nú eiginlega sprottið upp af spurningu sem ég heyrði mína ágætu kunningjakonu, Þóru Arnórsdóttur, spyrja Gumma í Kastljósi áðan. Á meðan ég var að vaska upp.

Hún spurði hvort flokkaflakk hans væri ef til vill tilkomið vegna þess að hann sjálfur sé erfiður í samstarfi. Það er ekki svo. Gummi er einn þægilegasti maður sem ég hef notið þess að vinna með. Sáttfús og sanngjarn. Stundum einum of fyrir minn smekk. Hér ber að staldra við og athuga að hann stýrði helgarblaði Fréttablaðsins með mig, Jakob Bjarnar Grétarsson og sjálfa prímadonnu prímadonnanna, Kolbrúnu Bergþórsdóttur innanborðs. Vissulega snarbilað fólk en örugglega skemmtilegra, gáfaðara og víðlesnara en það sem þingflokkur Framsóknarflokksins býður upp á á sínum fundum. Og þessum ósamstæða, freka og ágenga hópi hélt Gummarinn saman með lítilli fyrirhöfn.

Auðvitað er hann nettur tækifærissinni eins og allir pólitíkusar en ég hef séð hné þessa manns gefa sig þegar hann hljóp úr vinnunni vegna þess að fyrsta barnið hans var að koma í heiminn og ég veit að það var einlægni og væntumþykja í augum hans þegar hann kvaddi mig fyrir utan Fréttablaðið í Suðurgötu áður en ég fór í fyrstu meðferðina mína: „Þú kemur örugglega aftur er það ekki? Eins og þú átt að þér að vera?“ Það var sætt og mér þótti vænt um þetta augnablik á meðan ég þjáðist í detoxinu.

Ég held að Gummi sé heiðarlegri og mannlegri en margir í pólitik. Hann er líka með húmor sem skilur á milli feigs og ófeigs í lífinu. Bókstaflega. Leiðinlegt fólk lætur ekkert gott af sér leiða og á ekkert að vera í pólitík. Hann er líka með haug af gráðum í heimspeki sem gerir það að verkum að hann kann að hugsa út fyrir kassann og skipta um skoðun.

Og nú liggur það fyrir, með lífsýnum og sögulegum staðreyndum, að ég og Gummi erum miklu tengdari framsókn og sönnum anda þess flokks en Sigmundur Davíð, Vigdís Hauksdóttir og þessi Gunnar Bragi. Það er ekki hægt að rífast um það einu sinni. Afi skrifaði sögu flokksins í þremur bindum og ég skal skjóta mig í hausinn með kindabyssu ef eitthvert ofantalinna hefur lesið stakt orð í þeim bókum.

Gummi er að slíta sig frá Framsókn, og enginn sem ekki á sömu sögu og genamengi og við, ætti að reyna að þykjast vita hversu erfið þessi ákvörðun hlýtur að vera. Gummi er figúratíft að fremja föður- og afamorð. En þar sem hann gerir það í nafni Framsóknar er það í góðu lagi og þótt ég sé enginn Þórhallur miðill eða Sigga Kling þori ég að fullyrða að gengið framsóknarfólk, afi minn, afi og pabbi Gumma og fjölmargir aðrir, horfa með velþóknun til Gumma í dag og á morgun.

Allt þetta fólk lagði líf og sál að veði og trúði því að það væri að vinna íslenskri þjóð gagn. Framsóknarflokkur samtímans snýst um eitthvað allt annað og verra. Afi minn stýrði málgangi Framsóknarflokksins í rúma hálfa öld. Hann vann náið með Jónasi, Hermanni, Eysteini, Óla Jó og Steingrími og hafði trú á Halldóri. En ég skrifa það á hversu lélegur mannþekkjari hann var og fús til þess að trúa öllu því besta upp á framsóknarmenn. Flokkurinn dó endanlega í formannstíð Halldórs og er í dag hryllingsmynd

Já. Á meðan ég man. Ég entist með herkjum eitt ár í MR. Þaðan sem Gummi Steingríms og hans klíka er útskrifuð og ég gef nú ekki mikið fyrir töffið í þeim köppum, sem unglingum. Degi B. Eggertssyni, Gumma, Erni Úlfari og Kristjáni Guy Burgess. Ef leðurklíkan mín, sem ég stofnaði í MK eftir að ég gaf skít í MR, hefði verið í sama sólkerfi þá hefðum við lagt þessa gúbba í einelti og stolið konunum þeirra. Just for the hell of it. (Bara að baktryggja mig fyrir Smáfuglum, Andríkum, Mogganum og jafnvel Smugunni).

Ég veit samt það eina sem ég þarf að vita og það er að Gummi er heill í þessu og ég tek aðallega hatt minn ofan fyrir honum fyrir það eitt að setja geðheilsu sína og þar með framtíð barnanna sínna í fyrsta sæti með því að yfirgefa Framsóknarflokkinn. Það hlýtur að flokkast sem andlegt ofbeldi að funda með sumum þar.

Og ég treysti mér til þess að fullyrða í nafni alvöru framsóknarfólks (ég er ekki einn af þeim en sagan og eitrið kraumar í blóði mínu) að skömm mun lengi hvíla á þeim sem fara ekki með Gumma og reyna að berjast fyrir fordómalausu og heilbrigðu samfélagi sem getur verið virkur þátttakandi í samfélagi þjóðanna.

Ég veit að framsókn þýðir áfram en ekki aftur á bak!


| 21:14 |
komment

Flott grein, þér tekst að hugsa út fyrir pólitíska sandkassann íslenska, öfugt við Björn Bjarna nokkrum mínútum á eftir þér.

Nr. 1 | M@i | 22.08.2011 | 21:59:16 | [+] |

Glæzd grein, Tódi...

Nr. 2 | Steingrímur Helgason | 22.08.2011 | 23:20:48 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff