»  off record  »  Heilabilaðar fyllibyttur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Heilabilaðar fyllibyttur
Sunnudagur, 28. ágúst 2011

Ég gladdist svo hastarlega þegar ég heyrði frétt í útvarpinu um að hófleg neysla áfengis drægi úr hættu á heilabilun að ég keyrði næstum út af Vesturlandsveginum. Hélt að þarna væri loksins komin skotheld réttlæting fyrir því að maður gæti fengið sér smá í glas á hverju kvöldi.

Samkvæmt minni reynslu telst hófleg neysla áfengis svona um það bil ein flaska af rauðvíni á dag. Tvær eða fleiri eru hins vegar ofneysla ef ekki hreinlega bara misnotkun. En ein rauðvín fyrir svefninn af heilsufarsástæðum hljómar stórkostlega. Maður vill auðvitað frekar vera með pottþéttan heila og slappa lifur, frekar en öfugt. Bónusinn með þessu væri svo auðvitað að maður sefur svo vel þegar maður hallar sér höfugur.

Þessi góða frétt reyndist því miður slæm. Einhver rannsókn þykir sýna fram á að karlmen geti dregið úr hættu á Alzheimers með því að drekka tvö vínglös á dag og konur með því að drekka eitt glas. Fyrir utan hróplegt kynjamisréttið er ég mest hneykslaður á TVEIMUR glösum!
Hvaða vitleysa er þetta?

Ég get ekkert drukkið einhver tvö glös á kvöldi eins og einhver plebbalegur smáborgari sem veit ekkert til hvers áfengi er. Ég get ekki opnað flösku og lagt hana frá mér ókláraða. Þannig að það blasir við mér að þessi tveggja glasa vísindi hjálpa mér ekki neitt. Alkar í þurrkaranum hljóta að vera stærsti áhættuhópurinn fyrir Alzheimers.

En maður getur huggað sig við að lifrin í manni verður í góðum fílíng þegar maður rembist við að leysa sunnudagskrossgátuna með því að krafla stafi í Sudoku-boxin.

Lífið er ósanngjarnt og leiðinlegt.


| 22:11 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff