»  off record  »  Hryllingur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hryllingur
Miðvikudagur, 24. ágúst 2011

Ég er hræddur við spítala og vil sem minnst vita um anatómíu vegna þess að innvols okkar er gróteskt og ógeðslegt gums og það er svo margt þar sem getur klikkað með tilheyrandi óbærilegum sársauka. Þess vegna forðast ég spítalasjónvarpsþætti á borð við Gray´s Anatomy, E.R., Chicago Hope og hvað þetta heitir allt saman jafn einbeittur og virkur alkóhólisti forðast bíómyndir um fólk sem fer í meðferð (Clean&Sober, 28 Days).

Hins vegar sæki ég í hrylling og splatter og fáar gerðir bíómynda gera jafn mikið fyrir mig. Hryllingurinn róar mig, lyftir geði mínu og þá sjaldan sem ég er svo heppinn að lenda á mynd sem hræðir mig eða gengur fram af mér þá líð ég um í sæluvímu í viku eða svo. Kannski ekkert svo merkilegt. Þið munið öll hann Aristóteles og kenningar hans um harmleikinn.

Ég kippi mér ekki upp við aflimanir, blóðflóð, heilaaðgerðir með vélsögum eða botnlangaskurð með búrhnífum en samt þarf ég að loka augum, kveinka mér og líta undan svona um það bil fimm sinnum yfir hverjum House þætti. Þetta er geggjun og getur varla gengið upp. Ef innyfli vella út í hryllingsmynd er það í góðu lagi en sé fólk með hanska að krukka í þörmum sofandi manneskju í sótthreinsaðri skurðstofu þá pissa ég á mig. Ekkert fer samt jafn illa með mig og að sjá sprautu stingast í handlegg. Og slíkt gerist nánast í hverjum þætti.

Þegar ég engist yfir House skil ég ekkert í því hvernig ég hef farið að því að vera viðstaddur þrjár fæðingar án þess að fá heilablóðfall og falla í dá. Auðvitað ætti ég að forðast House eins og öll spítaladrömun en ég flokka House ekki með því drasli.

Gregory House er bara svo skemmtileg persóna að ég er tilbúinn til þess að leggja gróteskuna á mig til þess að fylgjast með honum vera ömurlegur við fólk. Ég reyni auðvitað að læra eitthvað af honum í mannlegum samskiptum í leiðinni. Að ég tali ekki um hvernig tækla eigi, eða öllu heldur, lifa með fíkn. Mig er meira að segja farið að dreyma um að gleypa Vicodine dagana langa.


| 16:14 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff