»  off record  »  Leyfði Njáll Skarphéðni að leika sér of mikið í Wolfenstein?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Leyfði Njáll Skarphéðni að leika sér of mikið í Wolfenstein?
Miðvikudagur, 03. ágúst 2011

Norðmenn eru búnir að taka á hryðjuverki vitleysingsins af aðdáunarverðum þroska. Einhverjir þar í landi eru samt við það að fara á hvolf í skandinavíismanum með því að moka ofbeldisfullum tölvuleikjum úr hillum verslana. Þegar þessir leikir hverfa stendur vitaskuld eftir fallegur og friðsamur heimur þar sem allir eru vinir eins og dýrin í Hálsaskógi.

Væri þá ekki nær að leggja niður norska herinn? Ofbeldi, viðbjóður og skepnuskapur hafa plagað okkur lengur en tölvuleikir og bíómyndir. Hvað var annars hinn ráðagóði Njáll á Bergþórshvoli að spá þegar hann leyfði Skarphéðni litla að spila svona mikið í Castle Wolfenstein? Afleiðingin varð síðar sú að þegar fjölskyldu Skarphéðins var ógnað datt honum ekkert frumlegra í hug en að sækja staðalbúnað heimilisins og gera endajaxlaaðgerð án deyfingar á einhverjum leiðinda plebbum. Helvítis tölvuleikjaofbeldið alla daga.

Og hvernig datt Skalla-Grími til hugar að leyfa syni sínum sem sýndi augljós merki AHDH strax í frumbernsku að horfa á aftur og aftur á Die Hard I-IV og spila Grand Theft Auto svo lengi að hann var á leikskólaaldri þegar hann byrjaði að drepa alla sem bögguðu hann?

Hvaða vitleysa er þetta?


| 13:29 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff