Þriðjudagur, 16. ágúst 2011
Rakst á það einhvers staðar á intervefnum að fólk hefði áhyggjur af því að barnalegi leikarinn Matt Damon yrði næsti forseti Bandaríkjanna. Kannski var þetta bara á kommónistavefnum smugan.is þar sem fólk, sem vill að allir hugsi og breyti eins og það sjálft til þess að gera heiminn betri, tjáir sig. Ef svo er þá er þetta væntanlega false alarm.
Damon þessi er í besta falli óþolandi og var bestur í The Departed þegar Mark Whalberg skaut hann í hausinn en hann verður samt varla verri forseti en leikaraídjótið Ronald Reagan sem Bandaríkjamenn kusu yfir okkur á uppgangsárum Rocky og Rambo.
Þessi Damon-lúði er samt svona nett anarkista- og vinstri hetja eftir að hafa talað yfir heimildarmyndinni Inside Job sem ég sofnaði einmitt yfir áður en við komumst frá Íslandi.
Breytir því ekki að þótt ég sé ötull stuðningsmaður svarta mannsins í einu og öllu (Foreman er uppáhaldið mitt í House á eftir House) þá má Damon þessi vel verða forseti USA mín vegna næst.
Svo lengi sem hann lofar að hætta að leika. Obama gæti svo pottþétt orðið betri aksjónhetja en þetta ofvaxna barn sem hefur meðal annars unnið sér það til ófrægðar að skrifa bíómynd með Ben Affleck.
| 20:29 |