»  off record  »  Sjokkiđ ţegar „heitar á lausu“ snöggkólna
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sjokkiđ ţegar „heitar á lausu“ snöggkólna
Fimmtudagur, 25. ágúst 2011

Hiđ rómađa kjéllingablađ Vikan birtir í nýjasta tölublađi lista yfir „heitar á lausu“ og ég ýki ekki ađ ţegar ég sá listann féll snjóflóđ á sál mína. Ţegar Vikan birti sambćrilegan lista fyrir sléttu ári átti ég nefnilega heilar TVĆR barnsmćđur á ađal listanum en nú eru ţćr bara í smánardálknum „Einnig nefndar“. (Ţannig ađ semsagt í mesta lagi einn lúser međ fantasíur sem eru honum ofviđa lét sér detta í hug ađ nefna ţćr. Vonandi samt tveir ţannig ađ sami rithöfundurinn hafi ekki nefnt ţćr báđar. Ţađ vćri ógeđ).

Í fyrra fannst mér listinn vera innmúruđ stađfesting á ţví hversu fáránlega kúl ég er vegna ţess ađ ég skal hengja mig upp á ţađ ađ enginn núlifandi íslenskur karlmađur hefur náđ ađ búa međ og barna tvćr konur sem eru samtímis á lista yfir HEITAR Á LAUSU! En ef gengi barnsmćđra minna er jafn flöktandi og krónan ţá hlýtur gengisvísitala mín ađ vera enn dapurlegri og ţví vćntanlega viđ frostmark núna.

Ég er auđvitađ líka sármóđgađur fyrir hönd ţessara fögru og kláru stelpna vegna ţess ađ ég fékk ađ finna á eigin skinni, fyrir ári, hversu mikil niđurlćging er fólgin í ţví ađ vera „einnig nefndur“ en ţá var ég einmitt „einnig nefndur“ í sambćrilegum lista yfir „heita á lausu“ og ţannig settur undir virkilega ömurlega leppalúđa sem komust á topp listann og fengu af sér mynd. Grunnhyggna, frekar ljóta lúđa sem standast mér engan snúning og höfđu sko pottţétt ekki sofiđ hjá TVEIMUR heitum á lausu. En svona eru greinilega konur í röđum álitsgjafa sorglega grunnar og vitlausar.

Samt er auđvitađ ekkert vođa smart ađ ćtla ađ markađssetja sig sem „hönk“ fyrir ţađ ađ hafa sterka tilhneigingu til ţess ađ sofa hjá sérlega fallegum konum og ţess vegna var ég nú eiginlega ađ vona ađ ég vćri kominn upp úr 2. deild og hefđi fengiđ af mér mynd í síđustu Viku ţegar tímaritiđ birti lista yfir „heita á lausu“. Sá ekki ţađ eintak en skilst á ritstjóra Menn.is ađ ég hafi ekki komist á blađ. Hafi jafnvel ekki lengur veriđ „einnig nefndur“.

En sé svo ţá veit ég ađ um svindl er ađ rćđa vegna ţess ađ leppalúđunum sem stjórna hinu ömurlega útgáfufélagi Birtíngi er ekkert vođalega vel viđ mig og ég hef öruggar heimildir frá einni konu sem nefndi mig ađ henni hefđi veriđ tjáđ ađ „af einhverjum ástćđum vilja allar konur koma ţví ađ“.

Ţađ var og! Ţetta er tómt svindl og ég er enn heitur og ţá barnsmćđur mínar funheitar. Á lausu.


| 20:00 |
komment

Ţú hefur of miklar áhyggjur af áliti annarra. Ţađ er frekar uncool.

Nr. 1 | Elías Halldór | 25.08.2011 | 22:09:39 | [+] |

Og ţú hefur einstakan talent í ţví ađ fatta ekki djók.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 25.08.2011 | 22:38:19 | [+] |

Hlutirnir eru bara svo mikiđ skemmtilegri ef mađur tekur ţá alvarlega og sérstaklega er ţađ fyndiđ ađ horfa upp á örvćntingu djókersins ţegar hann er tekinn alvarlega.

Nr. 3 | Elías Halldór | 25.08.2011 | 23:15:14 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiđlar

Bloggar

shit and stuff