»  off record  »  1987
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
1987
Mánudagur, 05. september 2011

Sumir skreyta veggi heimila sinna með málverkum og ég hef svosem ekkert út á það að setja en sjálfur hef ég aldrei notað annað veggskraut en bíómyndaplaggöt. Eðlilega þar sem líf mitt snýst um að vera vandlega fastur í blekkingarheimi bíómyndanna.

Um þessar mundir lífga mósaíkmynd af Lord Vader, Lisbeth Salander á húddinu á brennandi BMW, Jessica Alba að strippa í Sin City, The Terminator, Maleficent úr Sleeping Beauty og Blade Runner upp á veggina ásamt Löru Croft. En eins og alþjóð veit hefur Angelina fylgt mér upprúlluð í pappahólki í gegnum þrjár sambúðir og um leið og sambýliskonurnar hverfa á braut hengi ég Lady Croft upp yfir rúminu mínu til þess að hugga mig.

Um helgina datt ég óvart í að horfa á The Untouchables eftir De Palma og datt í rosalega nostalgíu og sá allt í einu fyrir mér herbergið mitt árið 1987. Árið sem ég droppaði úr MR og stóra ástin mín og besti vinur var skiptinemi í Bandaríkjunum þannig að hver dagur var helvíti saknaðar og tómleika.

Eníveis. Þótt ég sé farinn að kalka man ég upp á hár hvaða plaggöt voru á veggjunum í Grenigrundinni, á hvaða veggjum þau voru og ég hef ekki einu sinni gleymt taglænunum:

ANGEL HEART
Harry Angel is searching for the truth. Pray he doesn´t find it.

YEAR OF THE DRAGON
It isn't the Bronx or Brooklyn. It isn't even Harlem. It's Chinatown...and it's about to explode.

YOUNG GUNS
Six reasons why the west was wild.

THE UNTOUCHABLES
Al Capone. He ruled Chicago with absolute power. No one could touch him. No one could stop him. - Until Eliot Ness and a small force of men swore they'd bring him down.

VERTIGO
A small story about a pushover.

Þetta pantaði maður nú allt via snailmail, enda löngu fyrir tíma Internetsins, frá fyrirtæki sem hét S. & P. Parkers. Mickey Rourke var aðalgæinn á þessum tíma (árið 1987 var kallað The Year of the Rourke í tímaritinu Films and Filming sem er löngu útdautt) og því eðlilegt að tvær myndir með honum hafi komist á veggina. Angel Heart var auðvitað alveg spes og er svosem enn. En hún var síðasta myndin sem ég sá í bíó með stúlkunni sem ég elskaði þá. Þetta var í Bíóborginni á ágústkvöldi 1987. Og nokkrum dögum síðar var hún flogin burt.

Angel Heart plaggatið er það eina sem ég á ennþá af þessum og mér þykir svona álíka vænt um það og Bram Stoker´s Dracula plaggatið sem við römmuðum inn og hengdum upp í stofunni þegar við byrjuðum að búa saman. Taglænið er LOVE NEVER DIES

... en það fór nú eins og það fór.


| 11:31 |
komment

Nei, skrýtið. Árið 1987 var árið sem ég droppaði út úr Háskólanum og stóra ástin í lífi mínu var í háskólanum í Helsinki.

Nr. 1 | Elías Halldór | 21.09.2011 | 1:34:36 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff