»  off record  »  Tvær mellur í kastljósi og ein í myrkrinu
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Tvær mellur í kastljósi og ein í myrkrinu
Föstudagur, 02. september 2011

Stígamót opnuðu í dag athvarf fyrir konur sem eru að reyna að losna úr vændi og mansali. Gott mál. Kastljós talaði við tvær blörraðar íslenskar konur sem hafa stundað vændi en eru hættar. Líka gott mál. Stígamót eru stolt af þessum konum fyrir að stíga fram. Gott mál. Þær sögðu hins vegar ekkert nýtt og höfðu engu að bæta við það sem kemur fram í Hið dökka man, bók minni og Jakobs Bjarnars um Catalinu.

Á meðan við vorum að skrifa bókina og eftir að hún kom út var „góða fólkið“ sem nú klappar fyrir íslenskum mellum duglegt við að drulla yfir okkur fyrir að vera að skrifa þessi ósköp og lagði sig fram um að „þagga“ bókina frekar en að taka heilbrigðan debatt og umræðu um það sem vonda konan Catalina hafði að segja. Vont mál.

Okkur var legið á hálsi fyrir að vera málpípur svörtu hórunnar sem gerði út aðrar konur, ekki síst vegna þess að hún væri lygatík sem ekkert væri að marka. Merkilegt nokk þá er samt fullkominn samhljómur í vitnisburði hvítu mellnanna í Kastljósi í kvöld og þeirrar svörtu í fangelsinu. Kastljós komst líka að því að eftirspurn eftir vændi á Íslandi er gríðarleg, og að kvæntir menn séu í merihluta þeirra sem sækjast eftir „þjónustu“ vændiskvenna og þær íslensku sögðust alltaf hafa verið að leika leikrit fyrir kúnnann. STOP THE PRESS! BREAKING NEWS!

Þessu er öllu haldið skilmerkilega til haga í bók sem kom út í fyrra og þá voru þetta nú ekki einu sinni ný sannindi. Stígamót segjast á Facebook-síðu sinni vera „óendanlega stoltar af hugrökku konunum okkar sem komu fram í Kastljósi í kvöld. Þetta eru hetjurnar okkar. Svo er það Fréttablaðið á morgun . . . fullt af greinum :-)

Stöldrum aðeins við. Þessar konur sögðu ekkert sem Catalina hefur ekki sagt og er þetta þá ekki bara sama lygaþvælan og vall upp úr Catalinu? Hórur ljúga, eins og þeir fáu vita sem lásu bókina. Nú blasir samt auðvitað við að íslensku konurnar eru fórnarlömb en Catalina skúrkur og gerandi. En þar sem hún kaus að selja líkama sinn hlýtur hún líka að vera fórnarlamb. Og þá fórnarlamb allra þeirra manna sem hún lék sama leikrit fyrir og þær íslensku. Ikke?

Ég trúi því ekki öðru en að þetta athvarf standi Catalinu opið þegar hún losnar úr fangelsi og þarf að flýja ákafa viðskiptavini sína þegar hún reynir að feta hinn þrönga veg dyggðarinnar. Ég meina, komon. Varla eru íslenskir femínistar rasistar?


| 22:45 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff